Sjöundi dagur í Paradís

1920

Muggur - Guðmundur Thorsteinsson 1891-1924

Klippimynd í bláum, appelsínugulum og brúnum tónum. Á myndinni eru þrír englar og nokkur tré án laufblaða.
LÍ-1085
  • Ár1920
  • GreinFlokkun LÍ / Trúarlegar myndir / Kristnar myndir, Samklipp / Samklipp
  • Stærð47 x 61 x 0 cm Stærð með ramma: 75 x 88 x 0 cm
  • EfnisinntakMaður, Engill, Tré, Paradís
  • AðalskráMyndlist/Hönnun
  • UndirskráAðalskrá
  • EfniÓflokkað (í vinnslu) / Vökvi / Blek / Túsk, Lífræn efni / Pappír
  • Merking gefandaGjöf frá prófessor Elof Risebye (1892-1961) 1958.
  • Útgáfa / Sería1
Heimild

Gjöf frá prófessor Elof Risebye 1958. Elof Risebye (f. 3. mars 1892, d. 1961) var prófessor við fresku- og mósaíkdeild Listaakademíunnar í Kaupmannahöfn á árunum 1949-61. Hann var nemandi á akademíunni samtímis Júlíönu Sveinsdóttur og mun hafa kynnst verkum Muggs í gegnum hana. Hann kynntist hins vegar aldrei Mugg sjálfum. Frá þessu segir í grein Leifs Sveinssonar um “Sjöunda daginn í Paradís” í Lesbók Morgunblaðsins 1984.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17