Án titils
2001
Finnur Arnar Arnarson 1965-
Sýningartexti
Grunntónninn í verkum Finns Arnars hverfist um tilgang og eðli lífsins í samhengi fjölskyldunnar og listsköpunar. Viðfangsefni hans eru því gjarnan á sjálfsævisögulegum nótum og oft er Finnur sjálfur í aðalhlutverki. Á ljósmyndinni, sem tekin er við sjávarsíðuna, ber frekar smáa mannsmynd með barnavagn á miðri mynd við ábúðarmikinn himin og sólarlag. Myndin hefur þannig skírskotun til rómantískrar hefðar landslagsmynda sem fjalla gjarnan um stöðu mannsins gagnvart náttúruöflunum. Myndefnið hefur einnig persónulega merkingu fyrir listamanninn þar sem hún var tekin skömmu eftir fæðingu hans fjórða barns. Í víðara samhengi veltir myndin upp spurningum um hlutverk karlmannsins og ímynd föðurins.
The basic theme of Finnur Arnar’s works focuses on the context of family and artistic creation. His subjects thus often have autobiographical content, and the artist himself tends to play the leading role. In the photograph, taken by the sea, a rather distant man with a pram is silhouetted against a magnificent sky and sunset. The photograph thus evokes the romantic tradition of landscape paintings, which often address the place of humanity vis-à-vis the forces of nature. The subject also has personal significance for the artist, as it was taken shortly after the birth of his fourth child. In a broader context, the picture raises questions about the masculine role and the image of fatherhood.


LÍ-11728
- Ár2001
- GreinLjósmyndun / Litljósmyndir
- StærðStærð með ramma: 55 x 65 x 0 cm rammi 55 x 65, karton 53,5 x 63,5, mynd 39,6 x 50,0
- EfnisinntakBarn, Barnavagn, Faðir, Haf, Landslag, Sólsetur, Himinn
- AðalskráMyndlist/Hönnun
- UndirskráAðalskrá
Lýsing
Grunntónninn í verkum Finns Arnars hverfist um tilgang og eðli lífsins í samhengi fjölskyldunnar og listsköpunar, og eru viðfangsefni hans því gjarnan á sjálfsævisögulegum nótum. Á myndinni, sem tekin er við sjávarsíðuna, ber mann með barnavagn við ábúðarmikinn himin og sólarlag. Myndin hefur þannig skírskotun til rómantískrar hefðar landslagsmynda sem fjalla gjarnan um stöðu mannsins gagnvart náttúruöflunum. Myndefnið hefur persónulega merkingu fyrir listamanninum þar sem hún var tekin skömmu eftir fæðingu hans fjórða barns en í víðara samhengi snertir myndin á spurningum um hlutverk karlmannsins og ímynd föðurins.
HöfundarrétturFinnur Arnar Arnarson, Myndstef
