Fygli

2022 - 2023

Ólöf Nordal 1961-

LÍ-12120-0

Fygli er innsetning með skúlptúrum, texta og hljóðmynd. Ólöf Nordal hefur lengi unnið með fugla í verkum sínum sem oft eiga rætur í þjóðtrú, ímyndarsköpun og menningu samtímans. Fygli eru skúlptúrar steyptir í brons sem sýna fígúrur í umbreytingu. Formgerð þeirra vísar í umskipti frá gervi manns í gervi fugls, frá hinu efnislega til hins andlega. Fyglin eru af heimi gróteskunnar og þess kynlega, en ýja líka að farfuglum þeim sem fljúga yfir hafið jafnt í formi fugls sem og í mennskri formgerð. Verkið er í samtali við nýtt verk Ólafar sem ber heitið Mannfuglar og er staðsett í garði hjúkrunarheimilisins Móbergs á Selfossi. Ólöf hefur unnið með menningararfinn, söguna og minni þjóðarinnar í verkum sínum á gagnrýninn og greinandi hátt. Listrannsóknir hennar beinast að sjálfsmynd þjóðar á eftir-nýlendutímum, uppruna og endurspeglun þjóðsagnaminna í samtímanum og brotinu sem spegli inn í fortíðina.

  • Ár2022 - 2023
  • GreinNýir miðlar / Innsetningar
  • StærðAthugasemd við stærð
  • EfnisinntakFugl, Furðuvera
  • AðalskráMyndlist/Hönnun
  • UndirskráAðalskrá
  • EfniÓlífræn efni / Málmur / Brons, Hljóð
  • AðferðTækni/Málmsmíði/Málmsteypa, Tækni/Hljóðritun
  • Útgáfa / Sería1 / 1
Höfundarréttur

Ólöf Nordal, Myndstef

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17