Ekspanótísk artifisjón af landslagi
1929
Jóhannes Kjarval 1885-1972
Sýningartexti
Sagt er að Jóhannes Sveinsson Kjarval hafi með verkum sínum kennt Íslendingum að meta fegurðina sem býr í viðkvæmum mosaþembum og úfnu hrauni landsins. Hann var líka óhræddur við að prófa ólíka stíla og nýjar stefnur í verkum sínum og málaði samtímis landslagsmyndir frá Þingvöllum og abstraktverk í anda kúbisma eins og það sem hér er og hann nefnir á sinn skáldlega máta Expanótíska artifisjón af landslagi. Það er þó fátt í verkinu sem minnir á landslag nema þá kannski borgarlandslag, eða hvað? Kjarval kynntist kúbismanum ásamt fleiri framúrstefnum á námsárum sínum í Kaupmannahöfn á öðrum áratug tuttugustu aldar og má víða sjá merki þeirra í fjölbreyttu myndmáli hans.

LÍ-1254
- Ár1929
- GreinFlokkun LÍ / Abstraktmyndir, Málaralist / Olíumálverk
- Stærð90 x 66 x 0 cm Stærð með ramma: 99 x 75 x 4,5 cm
- EfnisinntakAbstrakt
- AðalskráMyndlist/Hönnun
- UndirskráAðalskrá
- EfniÓflokkað (í vinnslu) / Málning/Litur / Olíulitur
- AðferðTækni/Málun
- Útgáfa / Sería1
Höfundarréttur
Myndstef, Jóhannes Kjarval-Erfingjar
HeimildKristín G. Guðnadóttir: Jóhannes S. Kjarval. Mótunarár 1885-1930, Rvík 1995, bls. 30-31; Matthías Johannessen: “Gríman gagnsæ blekking”, Kjarval aldarminning. Rvík 1985, bls. 30-31. Ólafur Kvaran, “Punktar um upphaf íslenskrar abstraktlistar”, Íslensk abstraktlist, Kjarvalsstaðir 1987. Kristín G. Guðnadóttir, “Jóhannes S. Kjarval, Lifandi land 1930-1945”. Sýningarskrá, Jóhannes S. Kjarval, Lifandi land 1930-1945, Kjarvalsstaðir janúar-maí 1997, bls. 13. Kristín G. Guðnadóttir, Kjarvalsbók, 2005.
