Guli glugginn

1944

Snorri Arinbjarnar 1901-1958

LÍ-1288
  • Ár1944
  • GreinFlokkun LÍ / Kyrralífsmyndir, Málaralist / Olíumálverk
  • Stærð91 x 81 x 0 cm 102,5 x 92 x 0 cm
  • EfnisinntakKyrralífsmynd, Gluggi, Uppstilling, skráð e. hlutv.
  • AðalskráMyndlist/Hönnun
  • UndirskráAðalskrá
  • EfniÓflokkað (í vinnslu) / Málning/Litur / Olíulitur
  • AðferðTækni/Málun
Lýsing

Það má leiða að því líkur að stríðsárin hafi verið frjóasta tímabilið í list Snorra Arinbjarnar. Rétt eins og vinur hans og starfsbróðir, Þorvaldur Skúlason, benti á í umfjöllun um þriðju einkasýningu hans, í Listamannaskálanum við Kirkjustræti árið 1945, þá var hinn nýi galdur fólginn í því að birt hafði yfir litaspjaldi Snorra og honum hafði tekist að losa sig við óþarfa liti. Þorvaldur var með öðrum orðum að segja að Snorri hefði þétt og einfaldað myndmál sitt með þeim árangri að litaspilið varð kröftugra en áður. Á fyrri hluta stríðsáranna var listmálarinn upptekinn af hringmyndaðri og þaninni formmótun, nokkurs konar nýbarokki byggðu á samhverfri myndbyggingu og næsta allegórískum, táknrænum frásagnarmáta. Guli glugginn er annars eðlis og byggir á síðkúbískri skipan eininga þar sem glugginn, í heild og einingum, með útsýni yfir þökin í götunni, endurómar jaðra sjálfs málverksins. Í fáum myndum Snorra kemur vald hans yfir samspili lita eins vel í ljós og í þessari mynd, sem er í senn leikur með andstæðurnar úti og inni, landslag og kyrralíf, tíma og tímaleysi. Það er ekki að ófyrirsynju sem Svavar Guðnason, annar mætur kollega Snorra, taldi, að honum látnum, að mönnum hefði löngum yfirsést hæfileikar hans og mikilvægi fyrir íslenska nútímalist. Var fyrri háttur Snorra þá horfinn með þessu skipulega en látlausa málverki? Ekki alveg, því í vinstra horni verksins er bleik vekjaraklukka með rómverskum tölum en engum vísum. Vísaleysi vekjarans dregur að sér athygli augans eins og segull. Rétt eins og vísalausar klukkurnar í kvikmynd Ingmars Bergman, Villiberjalundurinn (Smultronstället), þrettán árum síðar, bendir vísaleysið til frumspekilegra draumheima handan veruleikans sem við nemum með augunum. Þannig snýst málverk Snorra ekki aðeins um tvær víddir veruleikans, úti og inni, heldur einnig þriðju víddina, sem leynist innst inni.

Höfundarréttur

Myndstef, Snorri Arinbjarnar-Erfingjar

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17