Gullfoss

1909

Sigríður María Gunnarsson 1885-1970

Sýningartexti
Sigríður María tilheyrir þeim hópi kvenna sem hefur verið nefndur huldukonur í íslenskri myndlist þar sem vitað er að þær lögðu stund á myndlist á síðari hluta 19. aldar en lítið er varðveitt af verkum þeirra, fátt er vitað um menntun þeirra á sviði myndlistar og engin þeirra gerði myndlist að ævistarfi. Sem unglingur var Sigríður mjög fær í teikningu og árið 1906 flutti hún til móðursystur sinnar, Sigríðar og eiginmanns hennar, Eiríks Magnússonar bókavarðar, sem bjuggu í Cambridge á Englandi. Þar gafst henni tækifæri til að læra myndlist en ekki er vitað hvers eðlis námið var. Nokkrar vatnslitamyndir frá tíma Sigríðar í Cambridge hafa varðveist og sýna þær hús og mannlíf í borginni. Auk þess eru varðveittar landslagsmyndir eftir Sigríði en eina verkið sem er í eigu Listasafns Íslands er þessi vatnslitamynd af Gullfossi frá 1909 og er hún ein af örfáum myndum sem Listasafn Íslands á af þessum fræga fossi.   Sigríður María belongs to a group of women that has been called invisible women in Icelandic art. It is known that they were practising artists in the second half of the 19th century, and yet little remains of their work, not much is known of their education in the field of fine arts, and none of them made art their life´s work. As an adolescent Sigríður was highly skilled at drawing, and in 1906 she moved to Cambridge, UK to live with her maternal aunt Sigríður and her husband Eiríkur Magnússon, a librarian. There she had the opporutnity to study art, but it is not known what form her education took. A few watercolours, showing buildings and daily life in the city from Sigríður´s time in Cambridge, have been preserved. Some of Sigríður´s watercolours have also been preserved, but the only work owned by the National Gallery is this watercolour of Gullfoss from 1909, one of the rare images that the gallery owns of this famous waterfall.
Sigríður María Gunnarsson, Gullfoss, Gullfoss Waterfall, Landslagsmyndir, LÍ 165
LÍ-165
  • Ár1909
  • GreinFlokkun LÍ / Landslagsmyndir, Málaralist / Vatnslitamyndir
  • Stærð37 x 50 x 0 cm Stærð með ramma: 37 x 50,5 x 0 cm
  • EfnisinntakNáttúra, Foss, Landslag
  • AðalskráMyndlist/Hönnun
  • UndirskráAðalskrá
  • EfniÓflokkað (í vinnslu) / Málning/Litur / Vatnslitur, Lífræn efni / Pappír
  • AðferðTækni/Málun
  • Merking gefandaGjöf listakonunnar 1919
Höfundarréttur

Myndstef, Sigríður Gunnarsson-Dánarbú

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17