Álfaborg

1935

Jóhannes Kjarval 1885-1972

LÍ-3571

Segja má að listmálarinn Jóhannes S. Kjarval hafi breytt sýn og viðhorfi þjóðarinnar til náttúrunnar með túlkun sinni á hrauni og nálgun sinni á landlagsmálun. Hann var einstaklega næmur listmálari sem viðurkenndi tilvist þess sem er auganu hulið og túlkaði gjarnan vætti og verur í verkum sínum. Í verkinu Álfaborg miðlar Kjarval æskuslóðum sínum í Borgarfirði eystra þar sem hann ólst upp hjá skyldmennum sínum. Eflaust heyrði hann fjölmargar sögur af álfum í stórbrotinni náttúru Austurlands. 

Hér má sjá bláklæddar verur í rauð- og brúnleitum hamrinum. Þær snúa hver að annarri þar sem þær standa á syllum bergsins og stinga saman nefjum. Titillinn gefur til kynna að í verkinu megi sjá huldufólk frekar en mennska menn. Rauður litur bjargsins minnir á hallir í fjarlægum löndum og í forgrunni, neðst hægra megin, stendur engill. Vængjaðir englar og goðsagnakenndar verur birtast oft í myndum Kjarvals og stundum renna verurnar saman við náttúruna. 

Þrátt fyrir að Kjarval hafi málað úti í náttúrunni var hann aldrei að líkja eftir henni, heldur endurskapaði hann umhverfið og túlkaði á sinn persónulega hátt. Kjarval fór nýjar leiðir þegar hann kallaði fram fjarvídd í verkum sínum og byggði upp myndina með sínum eigin aðferðum.  Hann braut til dæmis upp myndflötinn með eins konar mynstri og lagði fyrst og fremst áherslu á yfirborð, litbrigði og áferð. Þannig sýndi hann landslagið í nærmynd og færði áhorfandann nær náttúrunni.

  • Ár1935
  • GreinMálaralist - Olíumálverk
  • Stærð38 x 42 cm
  • EfnisinntakÁlfaborg
  • AðalskráMyndlist/Hönnun
  • EfniOlíulitur
  • Merking gefanda

    Gjöf Guðríðar Stefánsdóttur og Kirby Green 1975

Lýsing

Álfaborgin í Borgarfirði eystri varð Kjarval margsinnis að yrkisefni enda var hann þar þaulkunnugur en hann ólst upp hjá frænkum sínum að Geitafelli í Borgarfirði eystri. Stórbrotin náttúran með ljósgrýti í líparítfjöllunum sunnan megin og skriðurnar í snarbrattri hlíðinni norðantil mót mikilúðlegum Dyrfjöllunum hafa eflaust mótað sýn Jóhannesar á uppvaxtarárunum. Huldufólkið átti sinn sess í hjarta unga mannsins og í þessu málverki má sjá bláklæddar verur standa á bergsillum og ræða saman í rauðleitum hamrinum. Samkvæmt frásögnum var allt var svo fallegt og bjart í hýbýlum álfanna og borðin svignuðu undan krásum sem voru fjarri raunheimi fátæks bændafólks á Íslandi fram á tuttugustu öld. Kjarval tókst með einstæðum hætti að tvinna saman íslenska náttúru og þjóðsögur í málverkum þar sem margskonar verur og vættir gera sig gildandi. Segja má að með slíkum málverkum hafi hann unnið hug og hjörtu þjóðarinnar. RP

Athugasemdir Ó.I.J. (2008): Verkið er foðrarð með hörstrigi. Blindramminn er ekki upprunalegur. Freser rammi: gyllur blaðgull. N.J. skráði 19.11.2024.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga 10–17