Morgunn á miðinu

1927

Finnur Jónsson 1892-1993

Sýningartexti
Finnur Jónsson var alinn upp í sveit og stundaði sjómennsku frá unga aldri. Hafið sótti því alla tíð sterkt á hann og eftir hann liggur mikill fjöldi verka sem tengjast sjómennsku og hafinu, bæði málverk og ekki síst teikningar. Elstu sjávarmyndir Finns sýna oftast einn eða fleiri sjómenn í árabát úti á opnu hafi, oft á úfnum sjó, þar sem báturinn er óendanlega smár í hlutfalli við haf og himin. Í málverkinu Morgunn á miðinu tekst Finni að draga fram dulúðuga og magnþrungna morgunstemningu með litum og myndbyggingu. Sjórinn er í mildum gulum, grænum og blágrænum litum en klæði sjómannanna í bláum og brúngulum litum og eru litirnir bornir þunnt á strigann svo myndin fær ákveðið gegnsæi. Með síendurtekinni notkun mjúkra boglína í öldunum á haffletinum, sem endurspeglast í formi bátsins og sjóhöttum mannanna, skapast sterk hreyfing í myndinni. Þessi hreyfing gengur öll inn í myndina og er undirstrikuð með litatónum sem lýsast er nær dregur sjóndeildarhringnum.   Finnur Jónsson grew up in rural Iceland, and worked as a fisher from a young age. The sea was always a major influence for him, and his oeuvre includes many works relating to fishing and the ocean – paintings and especially drawings. Finnur’s earliest maritime pictures generally depict one or more mariners in a rowing boat out on the ocean – often in rough seas – showing the vessel as minute in proportion to the sea and sky. In Morning at Sea Finnur brings out a mystical, potent morning ambiance through colours and composition. The sea is depicted in muted shades of yellow, green and turquoise, while the fishers’ oilskins are blue and brownish-yellow. The paint is applied thinly, lending the painting a certain transparency. With repetition of smooth curves in the waves of the sea, echoed in the form of the boat and the fishers’ sou’westers, the artist creates powerful movement within the painting. The movement progresses into the picture, and is intensified with shades that grow progressively lighter as they approach the horizon.
LÍ-367
  • Ár1927
  • GreinFlokkun LÍ / Atvinnulífsmyndir / Sjómennska, Málaralist / Olíumálverk
  • Stærð101 x 138 x 0 cm Stærð með ramma: 115,5 x 143 x 0 cm
  • EfnisinntakSjómaður, Fiskveiði, Árabátur
  • AðalskráMyndlist/Hönnun
  • UndirskráAðalskrá
  • EfniLífræn efni / Textíll / Ýmis vefjarefni / Strigi, Óflokkað (í vinnslu) / Málning/Litur / Olíulitur
  • AðferðTækni/Málun
Höfundarréttur

Myndstef, Listasafn Íslands

Heimild

Finnur Jónsson í Listasafni Íslands, Reykjavík: Listasafn Íslands, 1992.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17