Skarðatungl

1976

Ásgerður Búadóttir 1920-2014

Sýningartexti
Ásgerður Búadóttir var brautryðjandi á sviði listvefnaðar hér á landi en hún hóf að nýta vefinn sem listrænan miðil við upphaf sjötta áratugar síðustu aldar. Efniviðurinn var í fyrstu ull en um miðjan sjöunda áratuginn hóf hún jafnframt að nýta hrosshár í verk sín svo eftir var tekið. Tæknina sótti hún í aldagamlar handverkshefðir sem settu henni oft strangar skorður en verk hennar eru þó fyrst og fremst frjáls listsköpun sem talaði beint inn í samtímann. Verkið Skarðatungl var á sínum tíma á haustsýningu Félags íslenskra myndlistarmanna árið 1976 og segir það sína sögu að Ásgerður var alla tíð fullgildur félagi í samtökum myndlistarmanna og sýndi verk sín á sýningum félagsins. Var hún þannig mikilvæg fyrirmynd þeirra kvenna sem lögðu út á braut textíllistarinnar hér á landi. Verkið Skarðatungl, sem hefur kosmíska vísun í heitinu, einkennist af frumformunum og láréttum og lóðréttum línum en Ásgerður notar einnig sveigðar endurteknar skálínur sem liggja frá efra hægra horninu niður til vinstri og skapa hrynjandi. Samhliða hnýtir hún hvít hrosshár inn í vefinn og skapar mjúkar áherslur sem fanga augað, minna á þokuslæðing og skapa hreyfingu.   Ásgerður Búadóttir was a pioneer of textile art in Iceland. She started to use weaving as an artistic medium in the early 1950s. Initially her material was wool, but in the mid-1960s she added horsehair to her works, attracting considerable attention. Her technique drew on age-old craft traditions, which often entailed restrictions on the artist’s work; but her works are primarily free artistic expression which spoke directly to its time. Crescent Moon was originally shown in 1976 at the autumn exhibition of FÍM, the Association of Icelandic Visual Artist. It is telling that Ásgerður was always a full member of artists’ organizations and displayed her works at the Association’s shows. She was thus an important role model for the women who embarked on textile art in Iceland after the textile department was founded at the Icelandic School of Arts and Crafts in 1970. Crescent Moon, with a cosmic allusion in its title, is characterized by basic forms and horizontal and vertical lines, while Ásgerður also uses repeated curved diagonals which lie from the upper right corner down to the left, thus establishing a rhythm. At the same time she knots horsehair into the weaving, making soft accents which attract the eye, reminiscent of wisps of mist and creating movement.
LÍ-3841
  • Ár1976
  • GreinFlokkun LÍ / Abstraktmyndir, Textíllist / Myndvefnaður, Textíllist
  • Stærð158 x 115 x 0 cm
  • EfnisinntakAbstrakt
  • AðalskráMyndlist/Hönnun
  • UndirskráAðalskrá
  • EfniLífræn efni / Dýraríki / Hár / Ull, Lífræn efni / Dýraríki / Hár / Hrosshár
  • AðferðTækni/Textíltækni/Vefnaður
Höfundarréttur

Ásgerður Búadóttir-Erfingjar, Myndstef

Heimild

Haustsýningin 1976. Félag íslenskra myndlistarmanna. Kjarvalsstaðir 28.08.-12.09.1976. Sýningarskrá , nr. 117. Mikið um dýrðir á Kjarvalsstöðum, Mbl. 27.08.1976. Mynd. Einar Hákonarson. “Allt húsið er undirlagt”, Vísir, 1.09.1976. Mynd. Bragi Ásgeirsson, “Haustsýning F.í.M. 1976. Mbl. 9.09.1976. Mynd.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17