Akureyri
1878
A. E. Thompson 1828-1912
Sýningartexti
Danski fáninn blaktir yfir reisulegum íbúðarhúsum, vöruhúsum og bátaskemmum í Innbænum á Akureyri; í bakgrunni liggja skip við bryggju í Eyjafirði. Málverkið er vitnisburður um þann blómlega sjávarútveg sem einkenndi Akureyri á þessum tíma. Breski áhugamálarinn Anne Elise Thompson heimsótti Ísland árið 1878 ásamt bróður sínum, Wycliffe Thompson undirofursta, sem hélt einnig ferðadagbók í vatnslitum. Systkinin virðast hafa haft viðkomu í Færeyjum á leið til Íslands. Á öðrum málverkum gefur að líta Seyðisfjörð, Reykjarfjörð, Ísafjörð og Þingeyri sem og Reykjavík – einnig Þingvelli, Geysi og Stóru-Velli sunnanlands. Þau nýttu sér enn fremur fjalladýrð landsins sem myndefni, þar á meðal Snæfellsjökul og Esjuna.
Listasafn Íslands á alls 18 vatnslitamyndir eftir Anne Elise og 14 eftir bróður hennar, sem keyptar voru af bóksalanum Thomas Torp í Bretlandi árið 1937. Thompson-systkinin tilheyrðu þeim sístækkandi hópi breskra ferðamanna sem sótti Ísland heim á seinni hluta 19. aldar. Meðal annarra ferðalanga má nefna rithöfundinn og hönnuðinn William Morris, höfundinn Anthony Trollope og William G. Collingwood. Samhliða því sem útgáfa fræðirita og ferðasagna jók almenna þekkingu á Íslandi komu sífellt fleiri vel stæðir gestir hingað til lands.
The Danish flag flies over the impressive homes, warehouses and boathouses of Innbærinn (the Inner Town) of Akureyri, which stands out against the backdrop of Eyjafjörður, where ships are moored offshore. The painting serves as a document of the prosperous maritime economy of Akureyri at the time. The British amateur painter, Anne Elise Thompson, visited Iceland in 1878 with her brother, Lieutenant-Colonel Wycliffe Thompson, who also kept a travelogue in watercolour. They siblings appear to have arrived in Iceland via the Faroe Islands; other paintings show the communities Seyðisfjörður in the east, Reykjarfjörður,Ísafjörður and Þingeyri in the West Fjords, and Reykjavík, as well as Þingvellir, Geysir and Stóru-Vellir in the south. The two also took Iceland’s majestic mountains as their subjects, including Snæfellsjökull glacier and Mt. Esja.
The National Gallery of Iceland owns 18 watercolours by Anne Elise and 14 by her brother, which were purchased from Thomas Thorp, a bookseller in Britain, in 1937. The Thompson siblings were part of a growing group of British travellers to Iceland in the latter half of the 19th century. Others included writer and designer William Morris and novelist Anthony Trollope and William G. Collingwood, to name a few. As the publication of scholarly writings and travel narratives increased knowledge of Iceland, growing numbers of prosperous travellers visited the country.


LÍ-493
- Ár1878
- GreinFlokkun LÍ / Mannvirkjamyndir / Þorpsmyndir, Málaralist / Vatnslitamyndir
- Stærð17.5 x 25 x 0 cm
- EfnisinntakSkip, Fjörður, Hús, + hlutv., Eyri, Fjall, Þorp
- AðalskráMyndlist/Hönnun
- UndirskráAðalskrá
- EfniLífræn efni / Pappír, Óflokkað (í vinnslu) / Málning/Litur / Vatnslitur
- AðferðTækni/Málun
- Útgáfa / Sería1
