Uppsprettur

1994

Þórður Hall 1949-

LÍ-5680

Þórður Hall stundaði nám við Myndlistaskólann í Reykjavík á árunum 1966–1967, Myndlista-og handíðaskóla Íslands frá 1967–1972 og framhaldsnám við Konunglega listaháskólann í Stokkhólmi frá 1972–1974. Hann hefur haldið á annan tug einkasýninga og tekið þátt í fjölda samsýninga. Þegar líða tók á áttunda áratuginn varð náttúran í verkum Þórðar rökræn og flatarkennd og ýmis rúmfræðileg form urðu áberandi. Í olíumálverkum Þórðar frá því um 1980 varð þessi sýn enn meira áberandi þar sem fjallakeilur og frumform einkenna agaðar náttúrulýsingar eins og sjá má í verkinu Snæfellsjökull frá 1983. Hér er ekki upphafið landslag náttúrudýrkunar heldur stílfærð og formræn náttúra eins og hún birtist borgarbúum.

  • Ár1994
  • GreinFlokkun LÍ / Landslagsmyndir, Málaralist / Olíumálverk
  • Stærð90 x 130 x 0 cm Stærð með ramma: 966 x 1315 x 34 cm
  • EfnisinntakLandslag
  • AðalskráMyndlist/Hönnun
  • UndirskráAðalskrá
  • EfniLífræn efni / Textíll / Ýmis vefjarefni / Strigi, Óflokkað (í vinnslu) / Málning/Litur / Olíulitur
  • AðferðTækni/Málun
Höfundarréttur

Þórður Hall, Myndstef

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17