Litli bleikrósótti draugurinn
2003
Bjargey Ólafsdóttir 1972-

Listsköpun Bjargeyjar Ólafsdóttur er ekki bundin við einn listmiðil heldur fæst hún við kvikmyndagerð, hljóðverk, gjörninga, teikningar, málverk og ljósmyndir. Í verkum sínum segir hún oft sögur og dansar á milli raunveruleika og skáldskapar.
Ljósmyndaverkið Litli bleikrósótti draugurinn var fyrst sýnt sem hluti af stærri ljósmyndaseríu og eru allar myndirnar teknar á sama stað og á sama tíma. Verkið er litljósmynd tekin á filmu í fjölskyldugrafreit Bjargeyjar. Myndin sýnir lágvaxna manneskju, líklegast barn, undir bleikrósóttu teppi að leika barnadraug. Smávaxinn draugurinn gengur út úr heimagrafreit uppi í sveit en myndin er tekin þegar farið er að rökkva og mild rökkurbirtan skapar draumkennt andrúmsloft sem minnir á íslenska sumarnótt.
Dauðinn var Bjargeyju hugleikinn á þeim tíma sem verkið var gert, en hún hafði nýlega farið út á land til að vera við jarðarför þegar hún tók myndina. Sem barn lék hún sér gjarnan með vinum sínum í draugaleik með því að setja lak yfir höfuðið. Í verkinu gengur hún inn í hugarheim barnsins þar sem leikurinn er í aðalhlutverki. Börn velta oft fyrir sér dauðanum og bæta honum inn í leiki. Þau vita hins vegar ekki alltaf hvað dauðinn er og hafa kynnst honum misvel. Það eru ekki til margar myndir af draugum í íslenskri listasögu, allavega ekki ljósmyndir. Líklegast er erfitt að ná þeim á mynd!
