Tilbrigði um Flosagjá
Jóhannes Kjarval 1885-1972


- GreinFlokkun LÍ / Landslagsmyndir, Málaralist / Olíumálverk
- Stærð45.5 x 60 x 0 cm Stærð með ramma: 57 x 70 x 4,5 cm
- EfnisinntakGjá, Landslag
- AðalskráMyndlist/Hönnun
- UndirskráAðalskrá
- EfniLífræn efni / Textíll / Ýmis vefjarefni / Strigi, Óflokkað (í vinnslu) / Málning/Litur / Olíulitur
- AðferðTækni/Málun
- Merking gefandaDánargjöf frá James K. Penfield fyrrverandi sendiherra Bandaríkja Norður Ameríku á Íslandi.
- Útgáfa / Sería1
Bláir tónar ríkja í þessari mynd Jóhannesar Kjarval frá Þingvöllum. Hraunið er brotið upp í strendinga að hætti kúbistanna og yfir köldu myndsviðinu ríkir móða. Augað hvarflar frá einum steini á annan og dregst að vatninu í gjánni fyrir miðri mynd og hvarflar síðan eftir fíngerðu smámynstruðu hrauninu út að sjóndeildarhring í blámóðu fjarskans. Á námsárunum í Kaupmannahöfn kynntist Kjarval helstu straumum og stefnum í samtímalist svo sem kúbisma og fútúrisma auk dansks módernisma. París var þá miðstöð gerjunar í myndlist. Segja má að aðferðafræði kúbistanna að umbreyta rými í massa hafi hjálpað Kjarval að túlka óreiðukent hraunlandslag og komið skikk á hlutina. Hann blandar óhikað saman ólíkum formgerðum mismunandi stíla. Dökkt grjótið í forgrunni skapar festu sem dugir til að halda verkinu saman. Þar sem augað hvarflar inn eftir myndfletinum milli hnullunganna í þessu seiðandi landslagi sem er engu líkt. RP
HöfundarrétturMyndstef, Jóhannes Kjarval-Erfingjar
