Jacqueline með gulan borða

1962

Pablo Picasso 1881-1973

Sýningartexti
Brjóstmynd Picassos frá 1962, Jacqueline með gulan borða (Jacqueline au ruban jaune á frönsku), á sér merkilega sögu. Heimildir geta þess að símskeyti hafi borist forseta Íslands frú Vigdísi Finnbogadóttur 27. júlí 1986, daginn sem sýningu lauk á 55 verkum Picassos á Listasafni Reykjavíkur – Kjarvalsstöðum undir heitinu Exposition Inattendue eða Óvænt sýning. Sýningin var hluti Listahátíðar í Reykjavík 1986 og Jacqueline Roque Picasso lánaði verkin á sýninguna, þar á meðal brjóstmyndina af sér úr hálfs metra hárri, tilskorinni og sveigðri járnplötu, með máluðum vangasvip Jacqueline á hvorri hlið. Áðurnefnt símskeyti svohljóðandi: „Voulez-vous accepter Jacqueline elle est à vous merci amitiés“ eða „Viljið þér þiggja Jacqueline hún er yðar þökk vinarkveðjur“. Skorinorðara gat það ekki verið, og frú Vigdís þáði þessa veglegu gjöf með þökkum fyrir hönd þjóðarinnar. Höggmyndin er ein af 400 portrettmyndum sem Picasso gerði af konu sinni, en auk brjóstmyndarinnar voru fjögur málverk af henni á sýningunni. Jacqueline með gulan borða er mótuð og máluð ári eftir að hjónaleysin gengu með leynd í það heilaga í ráðhúsinu í Vallauris. Eins og svo mörg Miðjarðarhafsverk Picassos dregur brjóstmyndin dám af Parísardömunni svokölluðu (La Parisienne), freskubroti af gyðju frá 15. öld fyrir okkar tímatal, sem fannst í höllinni í Knossos á Krít.     Picasso’s 1962 bust Jacqueline with a Yellow Ribbon (French Jacqueline au ruban jaune) has an interesting history. On 27 July 1986, the final day of the Exposition Inattendue (Surprise Exhibition) of 55 works by Picasso at the Reykjavík Art Museum – Kjarvalsstaðir, President Vigdís Finnbogadóttir received a telegram. Among the works on loan to the exhibition, which was part of the Reykjavík Arts Festival 1986, was the bust of by the artist’s widow Jacqueline Roque Picasso, half a meter in height, made of a cut and curved iron sheet, with a profile of Jacqueline painted on each side. The telegram, sent by Jacqueline, read: “Voulez-vous accepter Jacqueline elle est à vous merci amitiés” (“Will you accept Jacqueline she is yours thank you regards”). Short and to the point. The president was quick to reply with thanks that she would accept the gift on behalf of the Icelandic nation. The sculpture is one of 400 made by Picasso of his wife/muse; another four of them were shown at the Exposition Inattendue. Jacqueline with a Yellow Ribbon was made after the couple were secretly married at the Vallauris town hall. Like many of Picasso’s Mediterranean works, the bust displays the influence of The Parisian Girl (La Parisienne), a fragmentary fresco of a goddess from the 15th century BC in the ancient palace of Cnossos, Crete.
LÍ-7450
  • Ár1962
  • GreinFlokkun LÍ / Mannamyndir / Andlitsmyndir, Skúlptúr / Málmskúlptúrar
  • Stærð51 x 29 x 22 cm
  • EfnisinntakKona, Andlit
  • AðalskráMyndlist/Hönnun
  • UndirskráAðalskrá
  • EfniÓlífræn efni / Málmur
  • Merking gefandaGjöf Jacqueline Picasso.
  • Útgáfa / Sería1
Lýsing

Málmplata, klippt, beygð, máluð.

Heimild

„Jacqueline er yðar”, Þjóðviljinn 15.08. 1986 „Forseta Íslands gefið eitt listaverka Picasso” Tíminn, 15.08.1986. JFJ, „Fáum seint þakkað þetta vinarbragð”, DV, 15.08.1986. „Forseta gefið listaverk eftir Picasso”, Morgunblaðið, 15.08.1986. EIR „Picasso Vigdísar metin á 10 milljónir”. DV 27.08.1986 „Þarf a ðgreiða fyrir gjöfina?”, Alþýðublaðið, 16.08.1986 EIR, „Picasso flækist á milli borða”, DV 21.10.1986 EIR, „Picasso við Tjörnina”, DV. 10.12.1986 „Picassostyttan komin til Íslands”, Morgunblaðið, 9.12.1986 EIR, „Picasso er á leiðinni” DV 28.10.1986 EIR, „Selma vill fá Picasso”, DV 18.02.1987 JBj, „Picasso Vigdísar enn í geymslu” DV 3.02.1988. -Hélène Parmelin, Picasso. Les dames de Mougins: secrets d’alcove d’un atelier. Cercle d’Art, Paris 1964. -Werner Spies, Picasso. Das Plastiche Werk. Werkverzeichnis der Skulpturen in Zusammenarbeit mit Christine Piot. Hatjem, Stuttgart, 1983. -De Pablo a Jacqueline. Pintures, dibuixos, escultures i obra gràfica 1954-1971. Museu Picasso, Ajuntament de Barcelona 1990. -Bo Wingren, Picasso i det offentliga rummet. Carlsson Bokförlag, Stockholm 2003. -Werner Spies (Hrsg.), Picasso. Malen gegen die Zeit. Hatje Cantz Verlag, Ostfildern 2006. -Picasso á Íslandi, Listasafn Árnesinga, Hveragerði 2008

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17