Aðflutt landslag / Imported Landscape
2003
Pétur Thomsen 1973-
Árið 2003 hóf Landsvirkjun að reisa 690 MW vatnsaflsvirkjun á Austurlandi, Kárahnjúkavirkjun, til að útvega rafmagn fyrir nýtt álver á Reyðarfirði. Verkefnið samanstendur meðal annars af þremur stíflum, þar af einni þeirri hæstu í Evrópu, vatnsaflsvirkjun og 40 km löngum aðrennslisgöngum. Stíflurnar teppa meðal annars Jökulsá á Dal og mynda 57 km2 Hálslón. Virkjunin var formlega gangsett í nóvember 2007. Kárahnjúkavirkjun er ekki aðeins stærsta verkefni Íslandssögunnar, heldur einnig það umdeildasta. Umhverfissinnar, sem berjast fyrir verndun villtrar náttúru, mótmæltu framkvæmdunum og bentu á að þessi mannvirki spilla stærstu villtu náttúru Evrópu. Þeir sem studdu verkefnið töluðu hins vegar um nauðsyn þess að nýta orkuna sem náttúran hefur upp á að bjóða. Pétur Thomsen fylgdist með umræðunni og hans leið til að taka þátt var að ferðast um svæðið á meðan á framkvæmdum stóð og taka myndir sem sameiginlega bera yfirskriftina Aðflutt landslag. Þetta er mögnuð syrpa ljósmynda sem lýsir hrikalegri umbreytingu landslagsins við Kárahnjúka þegar tæknimenningin með allri sinni nákvæmni og skipulagi ræðst gegn óspilltri náttúrunni umhverfis Hafrahvammagljúfur og brýtur landið undir sig miskunnarlaust. Risastórar jarðýtur fara um landsvæðið og skilja eftir sig svöðusár sem minna á drep í holdi. Pétur lýsir þessum ójafna leik með dramatískri hlutlægni sem skilur áhorfandann eftir í uppnámi þar sem hann upplifir smæð sína í samanburði við bæði náttúruna og pólitísk öfl. Þessar ljósmyndir eru þó ekki aðeins vitnisburður um framkvæmdirnar og næmt auga ljósmyndarans fyrir myndbyggingu, birtu og litum. Þær vekja einnig upp tilfinningu fyrir hinu ægifagra og háleita í náttúrunni og vekja jafnframt upp áleitnar spurningar um samspil manns og náttúru og hvert við stefnum sem samfélag í tilraunum okkar til að beisla náttúruna.
In 2003, The National Power Company of Iceland began the construction of Kárahnjúkavirkjun, a 690 MW hydropower plant in eastern Iceland, to provide electricity for a new aluminium smelter in Reyðarfjörður. The project is comprised of three dams, of which one is the tallest in Europe; a hydropwer plant; and 40 km long underground water tunnel. Amongst the rivers dammed by the project is Jökulsá á Dal, an operation that resulted in the formation of the 57 km2 Hálslón. The plant was formally opened in November 2007. Kárahnjúkavirkjun is not only the largest engineering project in Icelandic history but also the most controversial. Environmental activists fighting to conserve nearby wilderness areas demonstrated against the construction and pointed out that it would erode the largest wild landscape found in Europe. Supporters of the project, however, championed the necessity of utilizing the energy created in nature. Pétur Thomsen followed this debate closely. He traveled throughout the area during the construction and took a series of magnificent photographs that he entitled Imported Landscape. The series depicts the devastating transformation of the landscape at Kárahnjúkar when culture, with all its precise technology and planning, attacks the pristine natural landscape around Hafrahvammagljúfur, mercilessly restructuring it in its own image. Enormous bulldozers go about the area, leaving it wounded, like gangrenous skin. Thomsen describes this uneven game with dramatic objectivity which leaves the viewer totally perplexed as they experience their own smallness against the grandness of nature and the power of politics. These photographs not only bear testimony to the construction and the photographer´s sensitivity to visual composition, light and colour. They also evoke a feeling for the sublime and noble qualities of nature while asking persistent questions on the interaction between man and nature and where we are headed as a society in our attempts to harness natural forces.
