Bókfell

2015

Steina 1940-

LÍ-9049

Steina Vasulka hóf afskipti sín af myndbandalist 1968, ári eftir að hún settist að í New York ásamt eiginmanni sínum, tékkneska vélaverkfræðingnum og kvikmyndagerðarmanninum Woody (Bohuslav) Vasulka. Sem lærður fiðluleikari leit Steina á upptökuvélina sem myndrænt hljóðfæri; nokkurs konar framlengingu huga og handar. Frá 1968 til 1971 lögðu þau Steina og Woody megináherslu á að skilja innri virkni myndbandstækninnar og ná valdi á myndefninu með hjálp sjálfrar hljóðupptökunnar. Árið 1971 stofnuðu þau hjónin hið víðfræga Kitchen – Kitchen Live Audience Test Laboratory – í miðborg New York, fyrstu stofnun sinnar tegundar í heiminum sem einvörðungu sinnti fjöltæknilist. Verk þeirra frá þeim tíma voru raunverulegar innsetningar, áður en það heiti var almennt notað. Sjálf kallaði Steina margfeldi sitt af upptökuvélum og sjónvarpsskjáum umhverfisverk, eða environments, enda gengu gestir inn í þessar rafrænu upptöku- og endurvarpsveröld líkt og farþegar að ganga um borð í geimskip.

Í febrúar 2014 dvaldi Steina um mánaðar skeið á Íslandi og vann að hugmynd um rafrænt verk í samvinnu við Listasafn Íslands og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Hún fékk aðgang að handritunum í Árnastofnun og þannig birtist ný hlið á höfundarverki hennar þar sem fornsögunum er búin nýstárleg umgjörð í formi rafræns listaverks. Í verkið, sem fékk heitið Bókfell , valdi Steina ýmis handrit sem hún skeytti saman með hugvitsamlegum hætti þannig að þau líða áfram og vindast, snúast, umhverfast og bólgna út líkt og bóluþang í straumröst. Í fyrsta sinn verður ritlistin og blekteikningin Steinu að viðfangsefni þegar blóðrauðir höfuðstafir og mölétnar myndir renna fyrir augum áhorfandans í hæg fljótandi sístreymi. Bókfell er merkilegur áfangi í list Steinu, sem hingað til hefur einbeitt sér að náttúru Íslands og náttúru samfélagsins. Í verkinu er eins og mikil saga líði hjá með hátindum sínum og lægðum, rétt eins og saga heillar þjóðar sé færð á bók, sem spannar bæði viðburðaríka frásögn og átakalitla millikafla. Litur handritanna og letur hefur yfirbragð hörunds sem er sært eða sviðið, stungið ótal götum svo úr blæðir. Steinu tekst að draga fram það sem undir liggur, undarleg og óskiljanleg örlög þar sem framvindan er oftar en ekki illmennum í hag. Rétt eins og látlaus röddin sem fetar sig eftir frásögninni bregður Bókfell ljósi á harmleikinn sem býr að baki þessum miklu bókmenntum. Það er ekki hrópað eða kallað, öskrað eða emjað, heldur sagt frá með jöfnum og ákveðnum áherslum.

  • Ár2015
  • GreinNýir miðlar / Vídeóverk, Nýir miðlar
  • StærðTímalengd: 00:12:31
  • AðalskráMyndlist/Hönnun
  • UndirskráAðalskrá
  • EfniÓflokkað (í vinnslu) / Vídeó
  • Útgáfa / Sería1 / 8
Höfundarréttur

Myndstef, Steina

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17