Steggjun

2017

Guðmundur Thoroddsen 1980-

LÍ-9178

Karlar eru áberandi í verkum Guðmundar. Verkið var keypt á einkasýningu hans sem bar hið merkingarþrungna karllæga heiti Tittlingaskítur. Sem dæmi um karlana í verkum Guðmundar má sjá frummanninn, manninn með guðlegu ásjónuna, heimspekinginn, pípureykingamanninn, þann stirðbusalega, aflmanninn til verka, skopmyndakallinn, manninn sem hægir sér og karl sem mígur. Á tímum femínisma má leiða líkur að því að ýmsar félagslegar athafnir og gamaldags hugmyndir um karlmennsku eigi í vök að verjast. Guðmundur varpar upp svipmyndum sínum með mildilegri litapallettu sem skapar ljúfa ásýnd á karlheimana. Barnslegt myndaspilið, klippimyndir og teikningar eru samhengislausar frásagnir, en fela þó í sér ögrandi merkingu, sé horft til þess að hreinskilni barnsins kemst næst sannleikanum.

  • Ár2017
  • GreinTeiknun / Blönduð tækni, Teiknun
  • Stærð76.5 x 57 x 0 cm Stærð með ramma: 84,7 x 65,5 x 0 cm
  • EfnisinntakVeisla, Karlmaður, Brúðkaup
  • AðalskráMyndlist/Hönnun
  • UndirskráAðalskrá, Listaverkasjóður Amalie Engilberts
  • EfniÓlífræn efni / Steinategund / Grafít, Óflokkað (í vinnslu) / Málning/Litur / Vatnslitur, Óflokkað (í vinnslu) / Vökvi / Blek, Lífræn efni / Pappír
  • AðferðTækni/Samklipp, Tækni/Teiknun
Höfundarréttur

Guðmundur Thoroddsen, Myndstef

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17