Sameinaðir stöndum vér

2004

Birgir Andrésson 1955-2007

Sýningartexti
Verkið Sameinaðir stöndum vér  vann Birgir árið 2004, á 60 ára afmæli lýðveldisins. Verkið vísar til þáttaskila í Íslandssögunni sem urðu við hernámið í seinni heimsstyrjöldinni og síðar komu bandaríska hersins við stofnun Atlantshafsbandalagsins árið 1949. Þau nánu tengsl sem Ísland hefur síðan haldið við Bandaríkin og Bretland eru táknuð með lopafánunum: íslenska fánanum efst og bandaríska og breska fyrir neðan, eins og á verðlaunapalli. Kímni Birgis kemur hér vel fram, þar sem Bandaríkin eru lesin sem silfur og Bretland sem brons. Sameinaðir stöndum vér tengist innsetningunni Nálægð, sem var sýnd á Feneyjatvíæringnum 1995, þar sem handprjónaðir fánar í sauðalitunum voru í aðalhlutverki. Margræðni einkennir bæði þessi verk, en um leið eru þau einstaklega táknræn og auðlesin í sögulegu samhengi liðinnar aldar. Það minnir okkur til dæmis á það á hve miklum hraða nútíminn hélt innreið sína í gamla sveitasamfélagið og hvernig einangrun þess rofnaði. Birgir Andrésson hefur með þessum fánum náð að ramma inn söguleg skil og menningarsögu þjóðarinnar á einstakan hátt og skapað verk sem mun vekja umhugsun og umræðu um íslenska sögu og menningu um ókomna tíð.     Birgir made the work United We Stand in 2004, the 60th-anniversary year of the foundation of the Republic of Iceland. The work references a landmark in Icelandic history, when the country was occupied by British and then American troops during World War II; this was followed, after the war, to a continuing US military presence after the foundation of NATO in 1949. The close relationship that has since subsisted with the US and UK is signified by Birgir’s flags of Icelandic wool: the Icelandic flag at the top, with the US and UK flags lower down on either side, as on a prizewinners’ podium. Birgir’s humorous approach is manifested in the work, with the US in the position of “silver” and the UK “bronze.” United We Stand has a clear relationship to Birgir‘s installation Nálægð/Nearness, shown at the Venice Biennale in 1995, in which hand-knitted woollen flags in the natural earthy shades of Icelandic sheep were prominent. Both works are characterised by ambiguity, while at the same time they are exceptionally symbolic and easy to interpret in the historical context of the 20th century. They remind us, for instance, how rapidly the old Icelandic rural society was modernised, and how its isolation came to an end. In this work Birgir Andrésson has succeeded in framing a historic landmark and the history of national culture in a unique way. With works such as United We Stand, Birgir Andrésson has created a permanent legacy which continues to stimulate thought and debate about Icelandic history and culture.
LÍ-9242
  • Ár2004
  • GreinTextíllist
  • Stærð145 x 95 x 0 cm 3 x (145 x 95)  Breski fáninn: lengd 142-145 cm, breidd 91-98 cm Bandaríski fáninn: lengd 142-147 cm, breidd 93-99 cm
  • EfnisinntakÞjóðfáni, Fáni
  • AðalskráMyndlist/Hönnun
  • UndirskráAðalskrá
  • EfniLífræn efni / Dýraríki / Hár / Ull
  • AðferðTækni/Textíltækni/Prjón/Handprjón
Höfundarréttur

Myndstef, Birgir Andrésson-Erfingjar

Heimild

Birgir Andrésson. Sýnigarskrá gefin út í tilafni af sýningu í Listasafni Íslands 12.05-25.06.2016. Ljósmynd bls. 53. Lífsblómið. Fullveldi Íslands í 100 ár. Sýningarskrá í tilefni af sýningu í Listasafni Íslands 17.07.-16.12.2018. Ljósmynd bls. 33.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17