Rautt og svart

1955

Valtýr Pétursson 1919-1988

LÍ-9315/96

Valtýr Pétursson var í hópi þeirra listamanna sem settu svip á eftirstríðsárin á Íslandi. Valtýr var meðal brautryðjenda abstraktlistar hér á landi, afkastamikill listmálari, gagnrýnandi og virkur þátttakandi í félagsstarfi myndlistarmanna. Valtýr lét eftir sig fjölmörg málverk og pappírsverk, bæði í opinberum söfnum og einkaeigu, sem gefa innsýn í áhugaverðan feril þar sem fengist er við grunnþætti málverksins. Fjölmörg tilbrigði við ólík stef sýna athyglisverða þróun listamanns sem var óhræddur að takast á við mismunandi miðla, stíla og stefnur.

  • Ár1955
  • GreinFlokkun LÍ / Abstraktmyndir, Málaralist / Olíumálverk
  • Stærð113.7 x 68 x 0 cm Stærð með ramma: 127,3 x 81,6 x 0 cm
  • EfnisinntakAbstrakt
  • AðalskráMyndlist/Hönnun
  • UndirskráAðalskrá, Gjöf Listaverkasafns Valtýs Péturssonar
  • EfniÓflokkað (í vinnslu) / Rípólínlakk, Lífræn efni / Viður / Masónít
  • AðferðTækni/Málun
  • Merking gefandaGjöf Listaverkasafns Valtýs Péturssonar
Höfundarréttur

Valtýr Pétursson-Erfingjar, Myndstef

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17