Að fanga kjarnann

Mats Gustafson

7.2.2020 — 30.8.2020

Listasafnið

Sænski listamaðurinn Mats Gustafson fangar hverfulleik vatnslitarins af einstakri næmni. Á áttunda áratugnum hóf hann að vinna myndir fyrir tískuheiminn en helgaði sig æ meira eigin listsköpun þegar fram í sótti og hóf að vekja athygli. Í verkum sínum sveiflast listamaðurinn af mikilli leikni milli tískuheimsins, náttúrunnar og könnunar á umhverfinu.

Salur

3

&

4

7.2.2020 30.8.2020

Verkefnastjóri sýninga

Júlía Marinósdóttir

Ljósmyndun

Mikael Olsson (Sag Harbor Studio)

Framleiðsla, myndir, klipping, hljóð

Kristian Berglund

Umsjón með texta

Harpa Þórsdóttir

Myndefni verka hans virðast fábrotin: barrtré og steinar í náttúrunni, dádýr, andlitsportrett, tískuhönnun og nekt. En allt snýst þetta um að fanga fegurðina í sinni fjölbreyttu mynd. Listsköpun Mats er í senn fáguð og óræð. Pensildrættirnir eru nákvæmir, engin mistök leyfð. Ljósi og skugga er dreift líkt og taktvissum slætti á pappírinn. Litirnir renna saman og magna upp form.

Á sýningunni eru öll þekktustu verk Mats sem hann hefur unnið með tískuhúsum á borð við Christian Dior, Comme des garçons, Yohji Yamamoto, Romeo Gigli og Yves Saint Laurent fyrir tímarit eins og Vogue og Harper‘s Bazaar. Einnig varpar sýningin góðu ljósi á vatnslitaseríur hans af náttúru, nekt og portrettum af samferðarfólki hans.

Sýningin er unnin í náinni samvinnu við Norræna vatnslitasafnið í Svíþjóð.

Mats er fæddur árið 1951 og býr og starfar í New York.

7.2.2020 — 10.1.2021

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)