Hátíð íslenskra tilraunakvikmynda
CAMERA INSULARIS
14.1.2027 — 17.1.2027

CAMERA INSULARIS: Hátíð íslenskra tilraunakvikmynda
Eldfjöll, fiskimjölsverksmiðjur, svartir sandar, tónlist, jarðvarmavirkjanir, miðaldabókmenntir og súrsaðir hrútspungar – Ísland er þekkt fyrir ýmis undur, en til þessa hafa tilraunakvikmyndir ekki verið taldar þar á meðal. Það er í þann veginn að breytast.
Listasafn Íslands og Kvikmyndasafn Íslands kynna vetrarhátíð íslenskra tilraunakvikmynda.
Í framhaldi af CAMERA INSULARIS, Íslandshluta Videoex-hátíðarinnar í Zürich, heldur rithöfundurinn Sjón áfram að leggja drög að kortlagningu tilraunakvikmyndagerðar á Íslandi. Hann hefur nú valið yfir 20 verk úr fortíð og nútíð til sýningar undir sama heiti í Listasafni Íslands í janúar 2027.
Búið skynfæri ykkar undir að formfesta í frásögn og myndhugsun, takist á við óræðni í útfærslu og fagurfræði, gerið ráð fyrir að stafrænar uppfinningar mæti handgerðum heimi, verðið vitni að því þegar hugmyndin um „hið íslenska“ er þanin út. Sjáið lifandi myndir rísa úr gleymsku sögunnar.
Hátíðin stendur í fjóra daga, frá 14. til 17. janúar, og býður upp á sýningar og samtöl við kvikmyndagerðarfólk og fræðimenn.
Salur
1
14.1.2027 — 17.1.2027
Sýningarstjóri
Sjón
Ljósmyndir
© Jóhann Jóhannsson, stilla úr myndinni Last and first Men (2020)
© Katrín Ólafsdóttir, stilla úr myndinni In Death I Softly Sing (2014)

