Hrynjandi Hvera
Sigrún Harðardóttir
17.6.2016 — 11.9.2016
![Mynd af fólki sem horfir á vídeólistaverk](/_next/image/?url=https%3A%2F%2Fimages.prismic.io%2Flistasafn-islands%2F4001146a-7a59-41af-baa7-7876faa32711_Hrynjandi%2Bhvera-%2BSigr%25C3%25BAn%2BHar%25C3%25B0ard%25C3%25B3ttir.jpg%3Fauto%3Dcompress%2Cformat&w=3840&q=100)
HRYNJANDI HVERA fjallar um hina margbreytilegu hrynjandi og hljóm yfirborðsvirkni jarðhitasvæðis. Með gagnvirkri innsetningu vill listakonan hvetja sýningargesti til að taka þátt í framvindu verksins og setja þannig saman eigin skynjun á sjónrænum og hljóðrænum þáttum hversins. Upplifun þess sem tekur þátt í framvindu innsetningarinnar er svipuð og af hljóðfæraleik eða hljómsveitarstjórn. Það eru hinir margbreytilegu hverir sem eru hljóðfærin í þessu verki og tónbil hljóma þeirra eru margbreytilegir tónar sem myndast við mismunandi stig gjósandi hvera. HRYNJANDI HVERA er gagnvirkur óður til jarðarinnar í formi 36 myndbanda og gólfstykkis sem inniheldur 9 þrýstiskynjara.
Sigrún Harðardóttir nam myndlist við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og við Rijksakademie van beeldende kunsten í Amsterdam. Hún er með mastersgráðu í fjölmiðlafræði með áherslu á margmiðlun frá Université du Québec à Montréal. Sigrún hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum hér heima, og á söfnum og hátíðum út um allan heim. Verk eftir Sigrúnu eru meðal annars í eigu Listasafns Íslands, Listasafns Reykjavíkur, Listasafns Kópavogs, Landsbanka Íslands, Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja. Viðfangsefni Sigrúnar hefur meðal annars verið yfirborðsvirkni jarðhitasvæða sem hún hefur myndgert ýmist í málverkum eða tjáð með vídeói og hljóði. Má þar nefna sýningu Sigrúnar HVER/HVAR í Hafnarborg 1997, sem mun vera fyrsta einkasýning íslensks listamanns þar sem þema sýningarinnar fjallar alfarið um hverinn, og síðan sýningu hennar á Hrynjandi hvera í Hafnarborg 2006.
Verkið HRYNJANDI HVERA er ein af sérsýningum Vasulka-stofu í ár. Sýningin er opin alla daga frá kl. 10 til 17. Sýningunni lýkur 11. september 2016.
![Mynd af skúlpúr úr tré eftir Sigurjón Ólafsson](/_next/image/?url=https%3A%2F%2Fimages.prismic.io%2Flistasafn-islands%2F1322a0b1-cbb8-44c1-9aed-beec7613a07e_1327-b-Konan-i-husinu-Sigurj%25C3%25B3n%2B%25C3%2593lafsson.jpg%3Fauto%3Dcompress%2Cformat&w=3840&q=100)