Hula

Sigurður Guðjónsson

3.10.2026 — 3.1.2027

Listasafnið

Hula (2012) er seiðmagnað myndbandsverk eftir Sigurð Guðjónsson, tekið í einni samfelldri, sextíu mínútna langri töku. Verkið fangar í mynd og hljóði leik vindsins um svarta sanda Skeiðarársands. Foksandurinn feykist burt, lag fyrir lag, frá kyrru auga myndavélarinnar í átt að endalausri sjónarröndinni. Verkið er sýnt í samfelldri lykkju, án greinilegs upphafs eða endis, og verður þannig að mynd af óstöðvandi framrás tímans. Litdauf ásýnd landslagsins — er verkið í lit eða svarthvítu? — eykur enn á draumkenndan blæ þess.

Í jarðfræði er talað um vindburð þegar sand- og rykagnir berast með vindi um yfirborð jarðar. Enska heiti fyrirbærisins, aeolian transport, er dregið af nafni gríska guðsins Eólosar, gæslumanns vindanna. Sandurinn sjálfur er jafnframt hlaðinn myndhverfri merkingu: í tímaglasinu mælir hann framrás tímans, hann rennur milli fingra okkar og færist til undir fótum okkar, og aldrei munum við ná að slá tölu á sandkornin á ströndinni.

Áhugi Sigurðar nær þó lengra en þessar ljóðrænu skírskotanir gefa til kynna; hann beinist ekki síður að hinu áþreifanlega, skynrænni efniskennd yfirborðsflatanna og því hvernig hreyfing setur mark sitt á þá. Í nýlegum verkum sínum, svo sem Ævarandi hreyfingu sem hann gerði fyrir íslenska skálann á Feneyjatvíæringnum 2022, hefur Sigurður beint sjónum að vélum og manngerðum efnum. Þennan vélræna heim skoðar hann í nærmynd, oft í mikilli stækkun — allt innan afmarkaðs rýmis vinnustofunnar.

Hula, eitt af eldri verkum Sigurðar, sker sig hins vegar að nokkru úr: hér rammar hann inn náttúruna sjálfa, og úr verður sterk mynd sem býður þeim sem er reiðubúinn að gefa sér tíma og horfa af athygli að upplifa eitthvað sem er rétt handan hins hversdagslega.

Safnið keypti verkið árið 2015 og sýnir það nú í fyrsta sinn í fullri stærð á stóru tjaldi.


 

Salur

1

3.10.2026 — 3.1.2027

Sýningarstjóri

Pari Stave

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17