Hvalstöð

Woody Vasulka

25.4.2026 — 10.5.2026

Listasafnið

Árið 1964, eftir útskrift úr kvikmyndadeild FAMU háskólans í Prag, fékk Bohuslav „Woody“ Vašulka (1937–2019) 35 mm myndavél og svarthvíta filmu frá skólanum til að gera heimildarmyndir. Sama ár ferðaðist Woody til Íslands með Steinu Briem Bjarnadóttur (1940), íslenskum fiðluleikara sem hann hafði kynnst í Tékkóslóvakíu árið 1962 og kvæntist síðar. Á meðan á dvöl þeirra á Íslandi stóð vann Woody að tveimur kvikmyndum með Steinu, sem aðstoðaði við gerð myndanna, og tékkneska ljósmyndaranum Miroslav Filip (dags. óþekkt) sem kvikmyndaði. Fyrri myndin var Síldarvertíð á Seyðisfirði og sú seinni Hvalstöð.

Woody og landi hans Miroslav „höfðu eðlilega áhuga á sjávarútvegi, þar sem þeir komu frá landi sem ekki liggur að sjó,“ rifjar Steina upp, en hún fylgdi kvikmyndagerðarmönnunum um allt land. Þeir heilluðust af því hvernig hvalir voru flensaðir á vinnsluplaninu í Hvalfirði. „Tékkar hafa ákveðna andúð á drápi,“ segir Steina. „Þeim var brugðið við að sjá dýrið skorið upp“. Áhugavert er að myndin tekur enga afstöðu til hvalskurðarins og er það viljandi gert. Þar sem Woody kom frá landi undir sovéskum áhrifum vildi hann gera kvikmyndir sem beittu ekki áróðursaðferðum kvikmynda. Þvert á móti vildi hann láta myndirnar tala sínu máli. Tónlistin í myndinni sem samin er af Josef Ceremuga (tékkneskur, 1930–2005), undirstrikar nálgun listamannsins sem er að forðast tilfinningasemi. Með hlutlægri framsetningu myndefnis er áhorfendum látið eftir að mynda sér eigin skoðanir á veruleika hvalveiðiiðnaðarins.


Woody Vasulka

Listamaðurinn, kvikmyndagerðarmaðurinn og klipparinn Woody Vasulka er einn af braut­ryðjendum á sviði vídeólistar. Woody Vasulka, fæddur Bohuslav Vašulka í Brno í Tékkóslóvakíu árið 1937, lærði málmvinnslu og vélfræði við Iðnháskólann í Brno og kvikmyndagerð við FAMU háskólann í Prag. Ásamt lífsförunaut sínum Steinu (f. 1940) vann hann að því að kanna eðli vídeós og hljóðs, nýja tækni og stafræna myndvinnslu. Þau prófuðu ný tæki á borð við Digital Image Articulator, sem Woody fann upp ásamt Jeffrey Schier árið 1976. Vélin gat unnið stafrænar myndir með því að umbreyta þeim í kóðaform. Þau Woody og Steina stofnuðu The Kitchen í New York árið 1971.

Salur

1

25.4.2026 10.5.2026

Kynningarmynd

Woody Vasulka, stilla úr myndinni Hvalstöð, 1964. Birt með leyfi Vasulka Foundation og BERG Contemporary.

Sýningarstjóri

Pari Stave

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17