Ísland úr fjarska

16.5.2026 — 4.10.2026

Safnasafnið

Árið 1928 fékk Listasafn Íslands að gjöf 24 landslagsmálverk, líklega frá 18. öld eftir óþekktan höfund. Öll bera þau áletrun sem tengir myndefnið við Ísland, til dæmis Eyjafjallajökull og Almannagjá en þó er ljóst að myndasmiðurinn hefur varla komið til Íslands því fátt minnir á íslenska náttúru í þessum verkum. Safnið fékk verkin að gjöf árið 1928 frá erfingjum Tages Reedtz-Thott lénsbaróns af Gavnø og forsætisráðherra Danmerkur. Málverkin voru öll í mjög slæmu ástandi þegar þau bárust safninu og hefur lítið verið hugað að þeim þar til nýlega að áhugi manna á þessum sérstöku verkum hefur vaknað og hafa nokkur þeirra verið sýnd opinberlega á undanförnum árum. 

Hér eru þessi fágætu verk dregin fram í dagsljósið og grennslast fyrir um uppruna þeirra, sögu og myndefni. Vegna aldurs og ástands hefur mikið verið lagt í forvörslu verkanna enda sýningunni meðal annars ætlað að kynna vinnu forvarða fyrir gestum Safnasafnsins og beina athyglinni að þeirri starfsemi sem fer fram bak við tjöldin í söfnum.  

Gestum gefst einnig tækifæri til að velta fyrir sér ólíkri sýn á landið og kynnast frumlegum hugmyndum um fjöll og jökla í samtali þessara gömlu verka og nýrra fjalla úr smiðju nemenda í Valsárskóla í næsta nágrenni við Safnasafnið.  

Sýningin er samstarfsverkefni Safnasafnsins og Listasafns Íslands 

Safnasafnið

16.5.2026 4.10.2026

Sýningarnefnd

Dagný Heiðdal, Nathalie Jacqueminet og Steinunn Harðardóttir

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17