Kjarval á Austurlandi

Jóhannes S. Kjarval

3.10.2026 — 14.2.2027

Listasafnið

Kjarval á Austurlandi varpar ljósi á náin tengsl Jóhannesar S. Kjarvals við Austurland. Sýndar eru landslagsmyndir, mannamyndir og fantasíur og spanna verkin tímabilið frá 1914 til 1961, olíumálverk, vatnslitamyndir, grafíkverk og túskteikningar. Á Borgarfirði eystri eru æskustöðvar Kjarvals og þangað lagði hann oft leið sína á fullorðinsárum og sótti þá efnivið verka sinna til hins tignarlega landslags á Austurlandi. Sum verkanna á sýningunni sýna þekkjanlega staði, eins og Dyrfjöll og Álfaborg í Borgarfirði eystri, en önnur skírskota til alþýðutrúar og birta hugmyndaauðgi listamannsins. Á uppvaxtarárunum í Borgarfirði mótaðist ímyndunarafl Kjarvals snemma af örnefnum og sögum sem tengjast álfum og huldufólki og samskiptum þeirra við mannfólk. Álfaborgin í Borgarfirði og álfaborgir af huglægari toga birtast í mörgum verkanna á sýningunni og er ljóst að landslag og menning Austurlands hefur átt drjúgan þátt í tilurð hins sérstæða myndheims Kjarvals.

Andlitsmyndir Kjarvals af alþýðufólki í Borgarfirði eystri og nágrenni bera vott um ríkt innsæi, næmni og alúð gagnvart viðfangsefninu. Í verkunum, sem oft sýna veðurbarin andlit, mótuð af harðri lífsbaráttu, kjarnast sambýli manns og náttúru á einstakan hátt. Með því að tefla saman andlitsmyndum, landslagsmyndum og huglægum fantasíum þar sem Kjarval skyggnist í gegnum holt og hæðir, má öðlast innsýn í djúpstæð tengsl listamannsins við landið og víðfeðma könnun hans á lifandi veruleika náttúrunnar.

Flest verkin á sýningunni eru úr fórum Listasafns Íslands, þar af mörg úr safni Þorvaldar Guðmundssonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur. Einnig hafa verk verið góðsfúslega fengin að láni hjá öðrum söfnum, fyrirtækjum og einkaaðilum. Kjarval á Austurlandi, sýning á landslagsverkum Kjarvals frá Austurlandi, var opnuð í Skaftfelli myndlistarmiðstöð á Seyðisfirði í júní 2025 sem liður í samstarfi Listasafns Íslands við sýningarstaði á landsbyggðinni.

Jóhannes S. Kjarval er einn af frumherjum íslenskrar nútímamyndlistar. Oft er sagt að þessi ástsæli listamaður hafi opnað augu Íslendinga fyrir sérstæðri fegurð landsins og þá ekki síst þeirri fegurð sem finna má við hvert fótmál. Kjarval stundaði nám við Konunglega listaháskólann í Kaupmannahöfn árin 1913–1917 og bjó í Danmörku næstu ár. Árið 1922 flutti hann ásamt fjölskyldu sinni aftur til Íslands en hann dvaldi einnig í skemmri tíma á Englandi, Ítalíu og í Frakklandi.

Salur

2

3.10.2026 — 14.2.2027

Sýningarstjóri

Anna Jóhannsdóttir

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17