Yfirlitssýning

Kristín Jónsdóttir

1.10.2027 — 16.1.2028

Listasafnið

Haust 2027

Kristín Jónsdóttir (1888–1959) var einn af frumherjum íslenskrar myndlistar. Árið 1916 var hún fyrst íslenskra kvenna til að ljúka námi frá Konunglega listaháskólanum í Kaupmannahöfn og tók hún virkan þátt í myndlistarlífi borgarinnar þar til hún flutti til Íslands árið 1924. Hér á land lét hún til sín taka á sviði myndlistar í áratugi og átti verk á fjölda sýninga.

Kristín Jónsdóttir sótti myndefni víða og var fyrst Íslendinga, svo vitað sé, til að mála fólk við vinnu. Hún er þó einkum þekkt fyrir fjölmargar uppstillingar og landslagsmálverk og ferðaðist hún óhikað um óbyggðir landsins til að leita fanga. Einnig fékkst Kristín við hönnun húsgagna og fleiri innanstokksmuna og var heimili hennar og Valtýs Stefánssonar annálað menningarheimili. Kristín var mörgum mikilvæg fyrirmynd og hvatti óhikað sér yngra fólk til dáða á vettvangi myndlistarinnar.

Síðasta yfirlitssýningin á verkum Kristínar Jónsdóttur var haldin árið 1980 og því löngu tímabært að líta yfir feril þessa merka brautryðjanda.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17