Pocket Universe
Ásta Fanney Sigurðardóttir
6.2.2027 — 16.5.2027

Salur
1
6.2.2027 — 16.5.2027
Sýningarstjórar
Margrét Áskelsdóttir og Unnar Örn
Sýning Ástu Fanneyjar Sigurðardóttur Pocket Universe er framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum 2026. Í febrúar opnar sýningin á Listsafni Íslands.
Sýningin fjallar öðrum þræði um það hvernig ímyndunaraflið og vonin opna á margskonar möguleika til aðgerða og hugarfarsbreytinga, sérstaklega á tímum óstöðugleika og óvissu.
Ásta Fanney er myndlistarmaður búsett í Reykjavík. Í verkum hennar mætast hið brothætta og hið hráa, kímni og alvara, í verkum sem hreyfa við því sem býr rétt undir yfirborði tungumálsins og skynjunarinnar. Verkin einkennast af fjölbreyttri nálgun myndlistar. Ásta Fanney vinnur með innsetningar, gjörninga, hljóð, ljóð og texta, þar sem miðlarnir renna saman í opið myndmál. Mörkin milli myndlistar, tungumáls, tónlistar og gjörninga eru óstöðug og sífellt endurskilgreinanleg.
Lifandi gjörningar eru órjúfanlegur þáttur í framkvæmd Ástu Fanneyjar. Þar verða spuni, endurskrifun og samvera með áhorfendum að virkum þáttum verksins sem tekur á sig nýja mynd við hverja framsetningu. Gjörningarnir eru ekki endurtekning fyrirfram mótaðs verks heldur atburðir sem fanga augnablikið, þar sem texti, hljóð, líkami og rými mynda tímabundið samhengi sem verður aðeins til í þeirri sameiginlegu nærveru sem verkið kallar fram. Í þeirri samveru verður áhorfandinn hluti af verkinu; vitni, bergmál og þátttakandi í augnabliki sem hverfur um leið og það verður til.
Tungumálið gegnir lykilhlutverki í listsköpun Ástu Fanneyjar, ekki aðeins sem merkingarberi heldur sem efniskennd og hljóðræn nærvera. Röddin verður að efniviði sem mótar taktföst, draumkennd og síbreytileg form þar sem orð, þagnir og endurtekningar opna fyrir ný tengsl og merkingarlög sem geta víkkað skilning okkar á umhverfinu allt í kring. Í verkum hennar birtist innsæi sem þekkingarform og athygli sem skapandi afl. Orðin eru ekki aðeins sögð heldur verða þau til með hlustun; þau sveima á mörkum hljóðs, líkama og þagnar og kalla fram óræða merkingu.
Verk Ástu Fanneyjar standast ekki afdráttarlausar skýringar. Þau byggja fremur á ástandi en frásögn, á nærveru fremur en niðurstöðu, þar sem skynjun, tilviljun og óvissa verða virkir þættir í mótun merkingarinnar. Innan þess rýmis mætast hið meðvitaða og hið ómeðvitaða, hið efnislega og hið hverfula, í verkum sem kalla fram reynslu og skynjun fremur en túlkun. Tíminn verður þar að efniviði; augnablik safnast saman, leysast upp og birtast á ný í síbreytilegri hreyfingu.

