Pendúlar
Finnbogi Pétursson
28.5.2027 — 19.9.2027

Innsetning Finnboga Péturssonar, Pendúlar, er liður í sýningaröð þar sem mikilvæg verk úr safneigninni eru dregin fram að nýju. Verkið hefur ekki verið sýnt frá því það var fyrst sett upp á sýningunni Borealis 6 árið 1993. Það samanstendur af þremur hátölurum sem hanga úr loftinu í löngum pípum sem rafmagnssnúrur liggja um. Þegar hátalararnir sveiflast beint yfir hljóðnema á gólfinu myndast sívirk hljóðræn endurgjöf.
Listamaðurinn líkir þessari hringrás við samsíða spegla sem endurspegla hvor annan og skapa tálsýn um óendanlega endurtekningu. Pendúlarnir þrír gefa frá sér lágtíðni, síendurtekinn drunuhljóm sem minnir á iðnaðarvélar. Sveiflur þeirra færast ýmist í takt eða úr takti hver við aðra, þannig að tónbilin breytast stöðugt og raðast upp á nýtt. Með vísun til endurtekningar og hægfara tilbrigða í mínímalískri tónlist umbreyta „hljóðteikningar“ Finnboga, eins og hann nefnir þær sjálfur, úthugsaðri tilviljun í umlykjandi upplifun þar sem allur vélbúnaðurinn er sýnilegur.
Salur
1
28.5.2027 — 19.9.2027
Sýningarstjóri
Pari Stave

