Sequences í Safní Ásgríms Jónssonar

David Kefford og Dagrún Aðalsteinsdóttir

13.4.2015 — 19.4.2015

13.4.2015 19.4.2015

Sýningarstjóri

Alfredo Cramerotti

Sequences myndlistarhátíð fer fram í sjöunda sinn dagana 10.-19. apríl næstkomandi og ber útgangspunktur hátíðarinnar yfirskriftina Plumbing. Sýningarstjóri leitar fanga í huglægri birtingarmynd stafrænna samskipta og speglunar hennar í efnislegum kerfum líkamans og jarðarinnar.

Á hátíðinni verða sýnd verk 26 íslenskra og erlendra myndlistarmanna á 10 sýningarstöðum í Reykjavík. Listasafn Íslands/Safn Ásgríms Jónssonar er einn þeirra en þar verða sýnd verk Davids Kefford, TV Painting (2009), og Dagrúnar Aðalsteinsdóttur, U to O, 2014, Let's be (2012).

Opnun: 12. apríl, 16.00

Um Sequences og listamennina sjá hér

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)