Litróf birtunnar
Svavar Guðnason
25.2.2027 — 16.5.2027

Nafn Svavars Guðnasonar (1909-1988) er nátengt nýsköpun á sviði expressjónískrar afstraktmyndlistar í Evrópu. Áhrifarík sýning hans í Listamannaskálanum í Reykjavík í ágúst 1945 átti stóran þátt í að ryðja afstraktmálverkinu braut á Íslandi. Hann mótaðist sem listamaður á árum síðari heimsstyrjaldar í hópi framsækinna listamanna í Danmörku sem kenndu sig við Helhesten (Heljarhestinn) og lögðu með verkum sínum og hugsjónum um frjálsa, sjálfsprottna tjáningu grunninn að hinni heimsþekktu Cobra-hreyfingu.
Í þessum frjóa hópi listamanna tileinkaði Svavar sér opið viðhorf til listsköpunar, þvert á skilgreiningar og landamæri, og var alla tíð trúr hugsjón um óhefta tjáningu og sammannlegt erindi listarinnar. Verk hans einkennast af innlifun í sköpunarferlið, í síkvikri könnun á tjáningargildi og virkni lita, áferð þeirra og efniskennd. Gilti þá einu hvort málað var eða teiknað, unnið með olíulitum, litkrít eða vatnslitum, á léreft eða ýmsar gerðir pappírs, og notaðir penslar, sköfur eða önnur áhöld. Svavar leit á olíumálverk sín, krítarteikningar og vatnslitamyndir sem jafngilda tjáningarmiðla og sýndi slík verk iðulega hlið við hlið. Sýningin Litróf birtunnar spannar allan feril Svavars og miðlar fjölbreyttum aðferðum og efnistökum listamannsins og jafnframt þeirri tjáningarólgu sem býr í verkunum.
Salur
2
&
4
25.2.2027 — 16.5.2027
Sýningarstjóri
Anna Jóhannsdóttir

