Hringrás

Tumi Magnússon

8.6.2024 — 22.9.2024

Listasafnið

Verkið Hringrás eftir Tuma Magnússon er frumsýnt í Listasafni Íslands í tengslum við Listahátíð í Reykjavík 2024. Í verkinu koma saman allar þær ólíku vinnuaðferðir sem Tumi hefur tileinkað sér í gegnum tíðina, jafnt í málverkum og ljósmyndum á tíunda áratugnum sem í vídeóverkum síðustu 20 ára. Hann skeytir saman ólíkum fyrirbærum, togar í sundur, snýr upp á, vinnur með ólíkan hraða og leggur að jöfnu eitthvað örsmátt og annað gríðarstórt. Hann veltir fyrir sér hvað það tekur langan tíma að fara frá einum stað til annars og hraðanum sem þarf til að komast á áfangastað. Hann veltir einnig fyrir sér hvernig við skynjum samspil þessara þátta í rýminu – hraða og tíma. Í verkinu kallar Tumi fram óvænta fleti á kunnuglegum fyrirbærum sem kveikir ný hugrenningatengsl hjá áhorfandanum.  

Hinn manngerði hversdagsleiki hefur löngum verið Tuma hugleikinn en í verkinu Hringrás tekst hann á við náttúruna á óvæntan hátt. Verkið er 14 rása vídeó- og hljóðinnsetning sem fyllir salinn myndum og hljóðum. 

   

Salur

2

8.6.2024 22.9.2024

Listamaður

Tumi Magnússon

Texti

Ingibjörg Jóhannsdóttir

Ljósmynd

úr verki Hringrás, 2024

© Tumi Magnússon

Í samvinnu með

Listahátíð í Reykjavík

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17