Zanele Muholi
15.10.2022 — 12.2.2023
![](/_next/image/?url=https%3A%2F%2Fimages.prismic.io%2Flistasafn-islands%2F33aaae09-13d0-4093-a5cb-1422ccfa046d_062%2B-%2Bafrit.jpg%3Fauto%3Dcompress%2Cformat&w=3840&q=100)
Hér er á ferðinni stórsýning á verkum eins athyglisverðasta samtímaljósmyndara og aktívista í heiminum í dag, Zanele Muholi (f. 1972) frá Suður-Afríku. Áhrifamiklar myndir Muholi varpa ljósi á sögu og réttindabaráttu svarts hinsegin fólks í heimalandi listamannsins. Þar gefur Muholi þeim rödd sem daglega þurfa að berjast til að öðlast viðurkenningu samfélagsins á sjálfsmynd sinni.
Yfir hundrað ljósmyndir auk videoverka gefa innsýn í líf og samfélög jaðarsetts fólks, þar sem einlæg túlkun Muholi dregur sérstaklega fram þætti um kynja- og sjálfsmyndarpólitík, bönn, hatursglæpi og ofbeldi en einnig um stolt, mótstöðu, einingu og ást.
Salur
1
&
3
&
4
15.10.2022 — 12.2.2023
Sýningarstjórar
Harpa Þórsdóttir
Vigdís Rún Jónsdóttir
Yasufumi Nakamori
Sýningarhönnuður
Helgi Már Kristinsson
Textar
Tate Modern
Þýðing
Hólmar Hólm
Umsjón með viðburðum og fræðslu
Ragnheiður Vignisdóttir
Markaðs- og kynningarmál
Guðrún Jóna Halldórsdóttir
Umsjón tæknimála og ljósmyndum
Sigurður Gunnarsson
Uppsetning
Helgi Már Kristinsson
Magnús Helgason
Ísleifur Kristinsson
Gylfi Sigurðsson
Indriði Ingólfsson
Í samvinnu með
![](/_next/image/?url=https%3A%2F%2Fimages.prismic.io%2Flistasafn-islands%2F1139670a-cbac-4beb-a0ca-33e1698dbee1_North_Tate_001_Logo-777x500.jpg%3Fauto%3Dcompress%2Cformat%26rect%3D140%2C0%2C500%2C500%26w%3D100%26h%3D100&w=3840&q=100)
![](/_next/image/?url=https%3A%2F%2Fimages.prismic.io%2Flistasafn-islands%2F8469bc1d-bbcc-4e24-8fb4-e4596a57c0df_ZaneleMuholi3.jpg%3Fauto%3Dcompress%2Cformat&w=3840&q=100)
Um listamanninn
Zanele Muholi fæddist árið 1972 í Umlazi nálægt Durban, sem er þriðja stærsta borg Suður-Afríku þar sem hán býr og starfar í dag. Hán stundaði nám við Market Photo Workshop í Jóhannesarborg og Ryerson University í Toronto, Kanada. Muholi er meðstofnandi Forum for Empowerment for Women og eitt af stofnendum Inkanysio, sem er vettvangur fyrir hinsegin og sjónræna miðla. Muholi er heiðursprófessor við Hochschule für Künste í Bremen, Þýskalandi og hefur unnið til fjölda verðlauna og viðurkenninga. Einkasýningar á verkum Muholis hafa verið haldnar víða um heim á undanförnum árum: Goethe-Institut, Jóhannesarborg (2012); Brooklyn Museum, New York (2015); Stedelijk Museum, Amsterdam (2017); Autograf ABP, London (2017) og Museo de Arte Moderno de Buenos Aires (2018). Ljósmyndaserían Somnyama Ngonyama var sýnd á 58. Feneyjatvíæringnum (2019); Serían Faces and Phases var sýnd á dOCUMENTA 13 (2012) og á 55. Feneyjatvíæringnum (2013).
Muholi notar fornöfnin hán, háni, háns.
Zenele Muholi - Plakat
![](/_next/image/?url=https%3A%2F%2Fimages.prismic.io%2Flistasafn-islands%2F5baf8b85-d23b-4f30-a74f-6bae02ba8b93_L%25C3%258D_S%25C3%25BDningaplakat-Zanele.jpg%3Fauto%3Dcompress%2Cformat&w=3840&q=100)
Zanele Muholi
5.900 kr.
Samstarfsaðilar
Sýningin er skipulögð af Tate Modern í samstarfi við Listasafn Íslands, GL Strand og Bildmuseet Umeå. Sýningarstjórar: Yasufumi Nakamori Senior Curator, Tate Modern, London, Vigdís Rún Jónsdóttir verkefnastjóri sýninga og Harpa Þórsdóttir safnstjóri, Listasafni Íslands.
![](/_next/image/?url=https%3A%2F%2Fimages.prismic.io%2Flistasafn-islands%2F2c9df4b6-084d-4016-9e20-e3f3bbfed886_DeCore%2528aurae%2529Inst_2.jpg%3Fauto%3Dcompress%2Cformat&w=3840&q=100)