
Listamaður þjóðarinnar
Vefsýning á völdum verkum eftir Ásgrím Jónsson.
Listaverkagjöf Ásgríms til íslensku þjóðarinnar inniheldur rúmlega 700 olíu- og vatnslitamyndir, fullgerðar sem ófullgerðar, á annað þúsund teikningar og 150 teiknibækur auk fjölda ófullgerðra mynda frá ýmsum tímum. Ásgrímur kom víða við í list sinni og má skipta myndum hans í nokkra efnisflokka, til að mynda þjóðsagnamyndir, landslagsmyndir, borgarlandslag, mannlífsmyndir og kyrralífsmyndir.
Á vefsýningunni Listamaður þjóðarinnar eru sýnd valin verk úr eftirfarandi efnisflokkum:
- Þjóðsagnamyndir – þar sem listamaðurinn myndskreytir íslenskar þjóðsögur og ævintýri
- Landslagsmyndir – þar eru myndefnin að stórum hluta frá Húsafelli og Þingvöllum
- Borgarlandslag – sem sýnir myndefni frá Reykjavík og nágrenni
Stuttur texti fylgir hverjum flokki í þeim tilgangi að dýpka skilning áhorfandans á verkunum.
Það er mikilvægt verkefni Listasafns Íslands að kynna list Ásgríms og sögulegt hlutverk hans í íslenskri listasögu og er þessi sýning liður í þeirri viðleitni safnsins.
Sýningarstjóri: Vigdís Rún Jónsdóttir
Vefsýningin er unnin með styrk frá Rannsóknarsjóði Íslands, Nýsköpunarsjóði námsmanna.
Umsjónarmenn verkefnisins voru Rakel Pétursdóttir, deildarstjóri rannsókna og sérsafna við Listasafn Íslands og dr. Hlynur Helgason, lektor við Háskóla Íslands.
Þjóðsagnamyndir

Á fyrri hluta 19. aldar vaknaði sérstakur áhugi á þjóðsögum á Íslandi sem má tengja við rómantísku stefnuna. Hin þjóðlegu sérkenni voru í fyrirrúmi og var mikil áhersla lögð á að upphefja þau. Í kjölfarið var hafin söfnun á íslensku þjóðsögunum sem fram að því höfðu gengið manna á milli sem munnmælasögur og urðu þær mikilvægur þáttur í menningarlegri sjálfsmynd og sjálfstæðisbaráttu Íslendinga.
Allt frá fyrstu tíð vann Ásgrímur Jónsson jöfnum höndum að landslagsverkum og þjóðsagnamyndum. Hann var fyrsti íslenski myndlistarmaðurinn sem sótti innblástur í þjóðsagnaarfinn og var hann einkar afkastamikill á því sviði. Fjórtán árum fyrir fæðingu Ásgríms kom út fyrra bindi þjóðsagna Jóns Árnasonar, Íslenskar þjóðsögur og æfintýri, og var hann þeim því vel kunnugur frá barnsaldri.
Í safni Ásgríms Jónssonar eru um 1500 myndir sem tengjast efni íslenskra þjóðsagna og ævintýra, jafnt blýants- sem pennateikningar, vatnslitamyndir og olíumálverk, en í teiknibókum hans eru á þriðja þúsund teikningar og er stór hluti þeirra úr þjóðsögum. Þrátt fyrir að þjóðsagnamyndir hafi verið Ásgrími afar hugleiknar, voru þær þó aldrei í forgrunni á sýningum hans. Þjóðsagnamyndirnar komu hins vegar fyrir almenningssjónir í bókunum Lesbók handa börnum og unglingum árið 1907 og í Nýja stafrófskverinu árið 1909. Bækurnar voru báðar notaðar á sínum tíma sem aðalnámsbækur í lestrarkennslu og voru því myndskreytingar Ásgríms íslenskum ungmennum vel kunnar. Löngu síðar, eða árið 1959, gaf bókaútgáfa Menningarsjóðs út bókina Þjóðsagnabók Ásgríms Jónssonar, myndir frá síðari árum – Íslenzkar þjóðsögur.
Í sýningarhlutanum Þjóðsagnamyndir eru myndirnar flokkaðar eftir ævintýrum, álfasögum, tröllasögum og draugasögum og öðrum frásögnum.
Ásgrímur Jónsson - Ævintýri
Ásgrímur Jónsson - Álfasögur
Ásgrímur Jónsson - Tröllasögur
Ásgrímur Jónsson - Draugasögur og aðrar frásagnir
Landslagsmyndir

Um aldamótin 1900 átti sér stað umbylting í náttúrusýn Íslendinga sem á rætur að rekja til landslagsmálverka hinna svokölluðu frumherja í íslenskri myndlist, þeirra Ásgríms Jónssonar, Þórarins B. Þorlákssonar, Kristínar Jónsdóttur og Jóhannesar Kjarvals. Þau settu fram nýtt sjónarhorn og viðhorf til náttúrunnar sem tengist fegurðinni án nytjagildis. Allt frá upphafi sögu íslenskrar myndlistar um aldamótin 1900 og fram undir miðja 20. öld var landslag höfuðviðfangsefni íslenskra myndlistarmanna. Ægifögur náttúran, sem hafði verið rómuð í ljóðum rómantískra skálda 19. aldarinnar, varð einskonar ímynd þjóðarinnar á dögum sjálfstæðisbaráttunnar og landslagið þar af leiðandi verðugt viðfangsefni listmálara.
Segja má að Ásgrímur Jónsson hafi verið fyrsti íslenski listamaðurinn sem opnaði augu annarra fyrir fegurð landsins. Hann kenndi sinni kynslóð að meta fegurð landsins í nýju ljósi og hefur sú sýn haft varanleg áhrif á komandi kynslóðir. Í Safni Ásgríms Jónssonar eru um 550 landslagsmyndir, jafnt olíu- sem vatnslitamyndir og eru myndefnin að stórum hluta frá Húsafelli og Þingvöllum þar sem Ásgrímur dvaldist hvað mest er líða tók á ævina. Margar elstu olíumynda Ásgríms eru dökkar og sverja sig í ætt við stemningsmálverk aldamótanna. Um og eftir 1905 fór að birta til á litaspjaldinu hjá honum og má sjá greinileg áhrif frá frönsku impressjónistunum, sem lögðu áherslu á að fanga birtuna, augnabliksáhrifin og hið tæra loft.
Hekla
Þingvellir
Húsafell
Vatnslitamyndir af fjöllum
Borgarlandslag

Á síðastliðinni öld þróaðist Reykjavík úr smábæ í borg og ásýnd hennar og mannlífið allt tók stakkaskiptum. Á sama tíma óx og dafnaði íslensk nútímalist og varð Reykjavík og umhverfi hennar í öllum sínum margbreytileika mörgum listamanninum yrkisefni – jafnt götur, hús og fólk. Þegar Ásgrímur sneri heim úr námi frá Kaupmannahöfn árið 1909 málaði hann mikið í Reykjavík, ekki síst að vetrarlagi þegar ekki var greiðfært um landið. Hin löngu sumur og nálægðin við hafið hafði mikil áhrif á Ásgrím og lagði hann sig snemma eftir því að túlka birtuna og áhrif hennar á landið í anda impressjónismans sem hann hafði kynnst á ferðum sínum erlendis. Margar elstu Reykjavíkurmyndanna í safni Ásgríms mætti flokka sem stemningsmálverk – sumar myndanna eru málaðar í skammdeginu, ýmist í tunglsljósi eða snemma morguns á meðan aðrar eru baðaðar kvöldroða.
Ásgrímur Jónsson - Reykjavík
Ásgrímur Jónsson- Nágrenni Reykjavíkur




