Fjársjóður þjóðar í Safnahúsinu

Samsýning

5.6.2021 — 2.2.2023

Safnahúsið

Listasafn Íslands sýnir perlur íslenskrar listasögu í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Í húsinu er að finna listaverk frá síðari hluta 19. aldar til dagsins í dag sem endurspegla fjölbreytt viðfangsefni listamanna og gefst gestum hússins kærkomið tækifæri til að skoða mörg af helstu listaverkum þjóðarinnar.

Safnahúsið

5.6.2021 2.2.2023

Verkefnastjóri sýninga

Dagný Heiðdal

Textar

Dagný Heiðdal

Markaðs- og kynningarmál

Guðrún Jóna Halldórsdóttir

Fræðsla og viðburðir

Ragnheiður Vignisdóttir

Þann 1. mars 2021 var Safnahúsið afhent Listasafni Íslands. Það er fyrsta safnbyggingin sem var reist hér á landi og var hún vígð árið 1909 og hefur hýst ýmsar merkar menningarstofnanir síðan. Þessi glæsilega bygging gerir nú Listasafni Íslands kleift að sýna að staðaldri lykilverk úr safneigninni og bætir úr bráðri þörf safnsins fyrir húsnæði til sýningahalds.

Róska 1940-1996

Hlandblautar löggur, 1967

LÍ-8981

Í ólíkum sölum á efri hæðum safnsins má sjá upphafningu frumherja málaralistar á náttúru landsins þar sem töfrar íslensku sumarnæturinnar láta fáa ósnortna. Landslagið, náttúran og túlkun hennar hefur verið stöðugt viðfangsefni íslenskra listamanna. En fleiri þemu er að finna í húsinu þegar gengið er um. Fólkið í landinu hefur verið mikilvægt viðfangsefni margra listamanna í gegnum tíðina og á fyrstu hæð hússins getur að líta mannlífsmyndir af íslenskri alþýðu til sjávar og sveita ásamt tjáningarríkum mannamyndum.
Einnig má sjá kyrralíf eða uppstillingar þar sem listamaðurinn glímir við hversdagslega hluti í nærumhverfinu, liti, lögun og margbreytilegt yfirborð en síðast en ekki síst úrval abstraktverka en Listasafn Íslands á geysilega gott safn abstraktlistar.

Efsta hæðin í Safnahúsinu var löngum vinsæll útsýnisstaður þar sem húsið gnæfði yfir lágreistri byggð sem óx óðum. Þar gefst gestum kostur á að líta út um gluggana yfir höfnina og sundin blá og sjá með eigin augum það sjónarspil sem hefur veitt mörgum myndlistarmönnum innblástur eins og listaverkin bera vitni um.

Helgi Þorgils Friðjónsson 1953-

Fiskar sjávar, 1995

LÍ-6100


Sýningin Fjársjóður þjóðar í Safnahúsinu varpar ljósi á þá dýrmætu safneign sem Listasafn Íslands býr yfir um leið og myndlistin endurspeglar tíðarandann hverju sinni enda er listin í stöðugu samtali og endurnýjun, í takt við samfélagið allt.

Efsta hæðin í Safnahúsinu var löngum vinsæll útsýnisstaður þar sem húsið gnæfði yfir lágreistri byggð sem óx óðum.

17.12.2021 — 31.12.2023

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)