High Plane VI

Katrín Sigurðardóttir

7.2.2020 — 10.1.2021

Listasafnið

Katrín Sigurðardóttir hefur um árabil kannað áhrif skynjunar í margháttuðum innsetningum sínum og verkum. High Plane VI (2001) kallar fram tengsl manna sín á milli og við náttúruna sjálfa.

Salur

4

7.2.2020 10.1.2021

Verkefnastjóri sýninga

Júlía Marinósdóttir

Forvarsla

Ólafur Ingi Jónsson

Markaðs- og kynningarmál

Guðrún Jóna Halldórsdóttir

Fræðsla og viðburðir

Ragnheiður Vignisdóttir

Afstæði stærða og umhverfis er ríkur þáttur í verkum Katrínar og í þessari innsetningu tekst hún á við gamalt og þekkt efni íslenskrar málaralistar, fjöllin og blámann og fjarlægðina – sem og stöðuga nánd listamannsins við íslenska náttúru þó að hann sé jafnvel staddur fjarri föðurlandinu. Verkið vísar einnig til hreinleikans og þess óflekkaða en skírskotar að auki til mismunandi viðmiða og sjónarhorna okkar mannanna eftir því hvert lífsleiðin liggur.

Listasafn Íslands eignaðist High Plane VI árið 2005 og var verkið sérstaklega lagað að sýningarrými í safninu. Gestir þurfa að ganga upp stiga til að skoða verkið og er þessi stóra innsetning síðasta verkið í röð áþekkra verka sem bera sama heiti.

Sýningin er liður í því að kynna viðamikil verk og innsetningar samtímalistamanna úr safneign Listasafns Íslands.

Gestir munu fá notið verksins með ólíkum hætti í þeirri breytilegu birtu sem einkennir árstíðir á Íslandi.

Katrín er fædd árið 1967 á Íslandi. Hún nam við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og lauk BFA- gráðu við San Francisco Art Institute og MFA-gráðu frá Mason Gross School of the Arts, Rutgers University. Hún var fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum árið 2013 og hafa verk hennar verið sýnd víða um heim á einka- og samsýningum.

5.7.2020 — 10.1.2021

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)