Mats Gustafson
Að fanga kjarnann
Sænski listamaðurinn Mats Gustafson fangar hverfulleik vatnslitarins af einstakri næmni. Á áttunda áratugnum hóf hann að vinna myndir fyrir tískuheiminn en helgaði sig æ meira eigin listsköpun þegar fram í sótti og hóf að vekja athygli. Í verkum sínum sveiflast listamaðurinn af mikilli leikni milli tískuheimsins, náttúrunnar og könnunar á umhverfinu. Myndefni verka hans virðast fábrotin: barrtré og steinar í náttúrunni, dádýr, andlitsportrett, tískuhönnun og nekt. En allt snýst þetta um að fanga fegurðina í sinni fjölbreyttu mynd. Listsköpun Mats er í senn fáguð og óræð. Pensildrættirnir eru nákvæmir, engin mistök leyfð. Ljósi og skugga er dreift líkt og taktvissum slætti á pappírinn. Litirnir renna saman og magna upp form.
Á sýningunni eru öll þekktustu verk Mats sem hann hefur unnið með tískuhúsum á borð við Christian Dior, Comme des garçons, Yohji Yamamoto, Romeo Gigli og Yves Saint Laurent fyrir tímarit eins og Vogue og Harper‘s Bazaar. Einnig varpar sýningin góðu ljósi á vatnslitaseríur hans af náttúru, nekt og portrettum af samferðarfólki hans.
Mats er fæddur árið 1951 og býr og starfar í New York.
Sýningin er unnin í náinni samvinnu við Norræna vatnslitasafnið í Svíþjóð.
Mynd: Mats Gustafson Svört herðaslá (Romeo Gigli), 1990
Sýningarstjóri: Harpa Þórsdóttir
Verkefnastjóri sýningar: Júlía Marinósdóttir
Framleiðsla, myndir, klipping, hljóð: Kristian Berglund
Ljósmyndun: Mikael Olsson (Sag Harbor Studio)
Grafík: Henrik Nygren Design
Umsjón með texta: Harpa Þórsdóttir
Þýðing á texta: Anna Yates
Forvarsla: Ólafur Ingi Jónsson
Ljósmyndun og umsjón tæknimála: Sigurður Gunnarsson
Uppsetning: Baldur Geir, Guðni Gunnarsson, Geirfinnur Jónsson
Umsjón með fræðslu og viðburðardagskrá: Guðrún Jóna Halldórsdóttir