Með stolti og þakklæti!
Listasafn Íslands hlaut á dögunum viðurkenninguna Best of Reykjavík sem veitt er af Grapevine fyrir að skara fram úr meðal listasafna í Reykjavík. Öflugt sýningar- og miðlunarstarf ásamt fjölbreyttum viðburðum skapa dínamískt menningarlegt umhverfi. Við höfum sannarlega fundið fyrir jákvæðni og áhuga fólks á starfssemi safnsins síðustu misseri og fyrir það erum við afar þakklát.
Við höldum ótrauð áfram veginn!


