Listasafn Íslands hefur hlotið veglegan styrk frá Creative Europe sem er innan menningaráætlunar Evrópusambandsins. Styrkurinn er veittur til verkefnisins CUSP: Creative Understanding, Saving and Preserving Time Based Media Art og hefur það markmið að efla þekkingu og kunnáttu í varðveislu og uppsetningu tímatengdrar myndlistar, en með því er átt við list sem hefur tíma sem eiginleika (eins og litur og lögun í málverki eða skúlptúr) svo sem vídeóverk, hljóðverk, stafræn verk og gjörninga.
Stofnanirnar sem taka þátt í verkefninu, auk Listasafnsins eru Nasjonal Museet í Noregi, LiMa í Hollandi, Vasulka Kitchen í Tékklandi og Mystetskyi Art Arsenal í Úkraínu ásamt samstarfsaðilunum Vasulka Foundation, Háskóla Íslands og Listaháskóla Íslands.
Verkefnið spannar heildarferli tímatengdra myndlistarverka, frá sköpun til langtíma varðveislu, og skiptist í nokkra þætti; listamannaresidensíur, rannsóknir á listasögu og miðlasögu, neyðarviðbrögð og varðveislu verka í hættu, vistvænar varðveisluaðferðir og eflingu þekkingar og rannsókna á sviðinu.
Efnt verður til samstarfs við myndlistarfólk sem vinnur í flókna tæknilega miðla þar sem markmiðið er að rannsaka sjónarmið listamannanna sjálfra gagnvart varðveislu verkanna, skráningu og forvörslu. Sex listamönnum verður boðið til listamannadvalar, einum til tveim í hverju þátttökulandi, og munu forverðir heimsækja listamennina til þess að fræðast um aðferðir og tækni.
Varðveislustaðlar verða þróaðir í samstarfi við leiðandi sérfræðinga á sviðinu. Við undirbúning þess fer fram meðal samstarfsaðila söfnun á tilviksrannsóknum sem varpa ljósi á sögu tímatengdrar myndlistar innan stofnana sem varðveita slík verk. Sérstök áhersla verður lögð á rannsóknir á verkum Steinu og Woody Vasulka sem unnið er að í Vasulkastofu Listasafns Íslands um þessar mundir. Arkíf hjónanna er grunnur rannsóknarinnar en arfleifð þeirra varpar einstöku ljósi á sögu nýmiðla í myndlist sem og þær áskoranir sem söfn hafa þurft að kljást við með tæknilegri framþróun.
Í samstarfi við úkraínsku stofnunina Mystetskyi Art Arsenal í Kiev verður unnið að neyðarviðbragðsáætlun. Ferða-stafvæðingarstöð verður komið á fót til þess að bregðast við neyðarástandi, hvort sem það er af völdum náttúruhamfara eða manngerðra aðstæðna á borð við stríð. Þá verður stofnunum í Kiev boðið að stafvæða verk sem eru í hættu, til dæmis á segulbandi eða filmu. Varaeintökum af verkunum verður síðan komið í langtímavarðveislu hjá Listasafni Íslands og Nasjonalmuseet í Noregi.
Um leið og stefnt er að aukinni stafrænni varðveislu, neyðast stofnanirnar til þess að horfast í augu við þau áhrif sem slík varðveisla hefur á umhverfið. Með hliðsjón af því munu söfnin standa að rannsókn á kolefnisfótspori stafrænnar varðveislu til þess að kljást við umhverfisáskoranir. Innan verkefnisins verður unnið að því að gera söfnum kleift að hafa yfirsýn yfir kostnað og stöðu stafrænna verka með „grænum vasareikni“ ásamt því að fá tól og tækni til þess að betrumbæta aðferðir og aðstöðu.
Verkefnið er stutt af menningaráætlun Evópusambandsins en heildarupphæð styrksins er ein milljón Evra (tæplega 150 milljónir ISK) og er tímaramminn þrjú ár.


