FULLVELDI Á FÖSTUDEGI - MÁLÞING UM KOSnINGAR OG LÝÐRÆÐI

15.10.2018

Fullveldi á föstudegi, 19. október kl. 15. Kosningar og lýðræði - áhugaverð erindi þriggja fræðimanna og pallborðsumræður. Dagskrá: 15:00 - 15:15Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur: Sambandslagakosningin og þröskuldar. Hvað ef danska stjórnarskráin hefði gilt á Íslandi 1918?15:15 -15:30Ragnheiður Kristjánsdóttir sagnfræðingur: Hverjir gátu kosið? Um formlegar og óformlegar takmarkanir kosningaréttar á fyrstu árum fullveldisins.15:30-15:45 Unnar Rafn Ingvarsson sagnfræðingur: Þjóðaratkvæðagreiðslan 1918. Konur kjósa utan kjörfundar.Málþingsstjóri er Njörður Sigurðsson sviðsstjóri á Þjóðskjalasafni Íslands.

Gestum gefst einnig kostur á að skoða sýninguna Lífsblómið - Fullveldi Íslands í 100 ár, sem er samstarfsverkefni Listasafns Íslands, Þjóðskjalasafns Íslands og Stofnunar Árna Magnússonar. Aðgangseyrir á safnið gildir.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)