GÆÐASTUND Á DEGI ÍSLENSKRAR TUNGU

12.11.2018

Gæðastund á degi íslenskrar tungu - leiðsögn í umsjá Hörpu Björnsdóttur sýningarstjóra um sýninguna Véfréttir - Karl Einarsson Dunganon, föstudaginn 16. nóvember kl. 14. Gæðastundir í Listasafni ÍslandsDagskráin er ætluð eldri borgurum og er samsett af sérsniðnum leiðsögnum og spjalli við sérfræðinga safnsins um myndlist, yfirstandandi sýningar og starfsemi Listasafns Íslands. 

Viðburðirnir skapa tækifæri fyrir gesti til að nálgast myndlistina og menningararf þjóðarinnar á margvíslegan hátt. Ávallt er boðið upp á kaffi og bakkelsi frá Brauði og co. á gæðastundum í Listasafni Íslands. 

Hámarksfjöldi gesta á hverjum viðburði er 25 manns. Hægt er að skrá sig á staka viðburði með því að senda póst á netfangið mennt@listasafn.is eða í síma 515 9600.

Aðgöngumiði á safnið gildir. Frítt fyrir meðlimi Selmublúbbsins. 

Véfréttir - Karl Einarsson DunganonListasafn Íslands efnir til sýningar á úrvali verka Karls Einarssonar Dunganons sem er ætlað að varpa ljósi á líf og list þessa einstaka listamanns sem hafði alla tíð sterkar taugar til Íslands og arfleiddi íslensku þjóðina að verkum sínum. Varðveitir Listasafn Íslands rúmlega tvö hundruð myndverk, en ljóð hans, úrklippubækur og önnur gögn eru geymd í Þjóðskjalasafni Íslands.  

Karl Kerúlf Einarsson fæddist á Íslandi árið 1897 en flutti barnungur til Færeyja og síðar til Danmerkur þar sem hann bjó lengst af ævinnar og lést þar árið 1972. Hann tók sér ungur nafnið Dunganon en gekk einnig undir öðrum nöfnum sem þjónuðu því hlutverki sem hann lék hverju sinni. Líklegast er hertoginn af St. Kildu þekktasti titillinn sem Karl tók sér. Þó hann kæmi aldrei til þessa skoska eyjaklasa, sló hann eign sinni á hann og lýsti sig æðsta stjórnanda, útbjó sér vegabréf, ríkisstimpil, póststimpil og útdeildi riddaraskjölum.

Karl Einarsson Dunganon, hertogi af St. Kildu, var lífskúnstner og ljóðskáld sem ferðaðist víða og bjó um lengri og skemmri tíma í helstu borgum Evrópu. Dunganon gaf út sína fyrstu ljóðabók árið 1931 en upp úr 1946 hóf hann að teikna og mála og myndskreytti hann mörg ljóða sinna. Dunganon var sjálflærður á sviði myndlistar en verk hans bera þó vott um þekkingu á yngri og eldri list frá ýmsum menningarsvæðum. Hann taldi sig sjá inn í aðra og huldari heima og tjáir oft í myndum sínum eins konar sýnir eða drauma, þó einnig séu hversdagsleg störf og athafnir viðfangsefni hans. Skreytið er aldrei langt undan og myndirnar ávallt litríkar, frásagnakenndar og ævintýralegar.

Á sýningunni verður fjöldi verka úr myndröðinni Oracles (Véfréttir) sem Dunganon gerði við ljóðabálk sinn Oracles of St. Kilda og telur um tvö hundruð og fimmtíu verk. Myndefnið er fjölbreytt, meðal annars ýmiss konar dýr og furðuverur, spúandi eldfjöll, fagrar konur og fengsælir veiðimenn. Verkin eru unnin á tímabilinu 1946–1960, öll svipuð að stærð, unnin á pappír með fjölbreyttri gerð lita og lökkuð. 

Samhliða sýningunni er gefin út bók um ljóðskáldið og myndlistarmanninn Dunganon, sem gefur heildaryfirlit yfir ævintýralegt lífshlaup hans og höfundarverk, með viðamikilli kynningu á myndlistarverkum hans, þar sem sérstaklega er til umfjöllunar myndröðin Oracles (Véfréttir). Bókinni er ritstýrt af Helgu Hjörvar og Hörpu Björnsdóttur.

Sýningarnefnd: Birta Guðjónsdóttir, Dagný Heiðdal og Harpa Björnsdóttir

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)