Frábært tækifæri til þess að kynnast íslenskri myndlist!
Gæðastundir í Listasafni Íslands eru leiðsagnir og viðburðir í Listasafni Íslands. Dagskráin er ætluð eldri borgurum (60+) og er samsett af fjölbreyttum viðburðum, sérsniðnum leiðsögnum, spjalli við sérfræðinga um ákveðin listaverk, tímabil í listasögunni og valda listamenn.
Viðburðirnir skapa tækifæri fyrir gesti til að nálgast myndlistina og menningararf þjóðarinnar á margvíslegan hátt, bæði á fræðilegum forsendum og með óformlegum hætti, í safninu sjálfu og utan þess.
Ávallt er boðið upp á kaffi og meðlæti á gæðastundum í Listasafni Íslands. Bakkelsið er í boði Brauðs og Co.
Hámarksfjöldi gesta á hverjum viðburði er 25 manns. Hægt er að skrá sig á staka viðburði með því að senda póst á netfangið mennt@listasafn.is eða í síma 515 9600. Aðeins er greitt fyrir aðgöngumiða á safnið í hvert skipti, kr. 750.
Tengiliður dagskrár: Ragnheiður Vignisdóttir ragnheidur@listasafn.is
Hér má finna nánari upplýsingar um viðburðina.
DAGSKRÁ 2018
17. janúar kl. 14
FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐARKynning á dagskrá, saga Listasafns Íslands og leiðsögn um sýninguna Fjársjóður þjóðar – valin verk úr safneign.Kaffi og bakkelsi frá Brauði og Co í fallegu umhverfi.
20. febrúar kl. 14
KORRIRÓ OG DILLIDÓLeiðsögn um sýninguna Korriró og dillidó – Þjóðsagnamyndir Ásgríms Jónssonar.Kaffi og bakkelsi frá Brauði og Co í fallegu umhverfi.
21. mars kl. 14
KLESSUVERK EÐA ALVÖRU LISTAVERK?Leiðsögn um abstraktlist á sýningunni Fjársjóður þjóðar.Kaffi og bakkelsi frá Brauði og Co í fallegu umhverfi.
25. apríl kl. 14
ORÐIN FARA Á FLUGAndri Snær Magnason rithöfundur lyftir orðum á flug sem vakna við það að horfa á listaverk. Listaverkin veita innblástur í frásagnagerð.Kaffi og bakkelsi frá Brauði og Co í fallegu umhverfi.
16. maí kl. 14
KONUR Í MYNDLISTLeiðsögn um þátttöku kvenna í íslenskri myndlist.Kaffi og bakkelsi frá Brauði og Co í fallegu umhverfi.
20. júní kl. 14
ALLT ER BETRA EN BERIR ÖNGLAR Spjall við gesti um listamenn sem tengdust gistiheimilinu Múlakoti í Fljótshlíð sem var einn vinsælasti áfangastaður landsins á fyrri hluta 20. aldar.Kaffi og bakkelsi frá Brauði og Co í fallegu umhverfi.
18. júlí kl. 14
ÚTILEIÐSÖGN Útileiðsögn um slóðir listamanna í nágrenni Listasafns Íslands. Gönguferðinni lýkur í Safni Ásgríms Jónssonar þar sem boðið verður upp á kaffi og bakkelsi frá Brauði og Co.
15. ágúst kl. 14
100 ÁRA FULLVELDISAFMÆLI ÍSLANDS Leiðsögn um 100 ára fullveldisafmælissýningu í Listasafni Íslands. Handrit, fullveldi og gersemar þjóðar.Kaffi og bakkelsi frá Brauði og Co í fallegu umhverfi.
19. september kl. 14
STUND HJÁ SIGURJÓNILeiðsögn um ævi og list Sigurjóns Ólafssonar í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar,Laugarnestanga 70.Kaffi og bakkelsi frá Brauði og Co í fallegu umhverfi.
18. október kl. 14
SÖGUR AF VARÐVEISLU LISTAVERKAForvörður Listasafns Íslands spjallar við gesti um áhugaverð listaverk og varðveislu þeirra. Kaffi og bakkelsi frá Brauði og Co í fallegu umhverfi.
16. nóvember kl. 14
HVAÐ ER SVO GLATT SEM GÓÐRA VINA FUNDURDagur íslenskrar tungu. Spjall um tengsl skáldskapar og myndlistar.Kaffi og bakkelsi frá Brauði og Co í fallegu umhverfi.
13. desember kl. 14
JÓLIN KOMALitlu jólin í safninu og jólaleiðsögn.Kaffi og bakkelsi frá Brauði og Co í fallegu umhverfi.