GESTAGANGUR Í LISTASAFNI ÍSLANDS

27.6.2018

Þór Sigurþórsson er gestur í vinnustofu Prents & vina í Listasafni Íslands, sunnudaginn 1. júlí. Gestum safnsins býðst að fylgjast með vinnuferli hans og spjalla yfir kaffibolla frá kl. 14:00-17:00. 

Innsetningin er þáttur í sýningunni Ýmissa kvikinda líki þar sem yfir 100 grafíkverk 27 samtímalistamanna eru til sýnis. Sýningarstjórarnir Ingibjörg Jóhannsdóttir og Pari Stave hafa valið verk á sýninguna eftir listamenn sem vinna jafnhliða í grafík og aðra miðla. Meðal sýnenda eru rithöfundar og tónskáld en einnig myndlistarmenn sem eru síður þekktir fyrir grafíkverk sín, frekar fyrir málverk, þrívíð verk, innsetningar, gjörninga, ljósmyndaverk eða vídeólist.

ÝMISSA KVIKINDA LÍKI - ÍSLENSK GRAFÍKSýning íslenskra samtímalistamanna á grafíkverkum í Listasafni Íslands. Á sýningunni má sjá hvernig listamennirnir hafa beitt margbreytilegri skapandi færni og ýmiss konar tækni. Sýningarstjórarnir Ingibjörg Jóhannsdóttir og Pari Stave hafa valið verk á sýninguna eftir listamenn sem vinna jafnhliða í grafík og aðra miðla. Meðal sýnenda eru rithöfundar og tónskáld en einnig myndlistarmenn sem eru síður þekktir fyrir grafíkverk sín, frekar fyrir málverk, þrívíð verk, innsetningar, gjörninga, ljósmyndaverk eða vídeólist.

Á sýningunni Ýmissa kvikinda líki – Íslensk grafík eru yfir 100 þrykk og fjölfeldi eftir 27 listamenn. Þau elstu eru frá árinu 1957 og þau yngstu verða til á sýningunni. Verkin eru unnin með margs konar tækni, allt frá klassískum grafíkmiðlum eins og ætingu og silkiþrykki, til innsetningar sem gerð er með einþrykki og þrívíðu prenti.

Á sýningunni kemur berlega í ljós að grafíkmiðillinn er engin hliðarafurð í listsköpun. Með miðlinum opnast einstakar leiðir til fjölföldunar og endurtekningar og til að skapa raðir verka þar sem ólíkir þættir eru kallaðir fram í einhverju sem mætti líkja við fjölbreytilegan spuna. Undirliggjandi er spurningin: Af hverju velja listamenn að nota þennan miðil til sköpunar, á þennan hátt?Nánar um sýninguna.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)