Guðrún Darshan leiðir Gong-slökun í fallegu umhverfi Listasafns Íslands laugardaginn 9. desember kl. 12.
Gong-slökun er mjög eflandi og nærandi upplifun sem opnar fyrir flæðið innra með okkur. Í annríkinu sem einkennir nútímalíf er lífsnauðsynlegt að kunna listina að slaka á.
Guðrún Darshan er jógakennari, markþjálfi, bowentæknir og hómópati. Hún rekur jóga- og heilsustöðina Andartak, kennir jóga í Bústaðakirkju og stendur fyrir jógakennaranámi á sama stað. Auk þess býður hún upp á tíma í einstaklingsmiðaðri ráðgjöf, hómópatíu og markþjálfun. Guðrún hefur mikla ástríðu fyrir jóga og hugarrækt og því hvernig við getum skapað okkur líf í jafnvægi þar sem allir fá að blómstra.