HÁDEGISTÓNLEIKAR - ÍSLENSKI FLAUTUKÓRINN

22.9.2015

Íslenski flautukórinn og Listasafn Íslands standa fyrir hádegistónleikaröð í Listasafni Íslands. Síðasta föstudag hvers mánaðar er boðið upp á fjölbreytta tónlist til þess að vinda ofan af vinnuvikunni og endurræsa skilningarvitin. Að tónleikunum loknum býður Kaffistofa listasafnsins upp á hádegisverðartilboð.

Aðgangur er ókeypis.

Flytjendur:

Berglind StefánsdóttirJón GuðmundssonKaren Erla Karólínudóttir

Efnisskrá:Johann Joachim Quantz (1697 – 1773) - SonataVivace Largo Rigaudon Menuett Vivace

Joseph Bodin de Boismortier - Sonata Op. 7 No. 1GravementAllemandeLentementGaymentJames Hook (1746 – 1827) - Trio Op. 83Allegro con spirito Andante e sempre piano RondoÞað er tími til að hægja á slættinum í deginum og gefa sér næði til að njóta gersema og gloría.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17