Hönnunarmars í Listasafni Íslands

17.5.2021

Listasafn Íslands og Tækniskólinn vinna í fyrsta skipti saman að sýningu þar sem nemendum í gull- og silfursmíði gefst kostur á að sýna skart í tilefni HönnunarMars 2021.

Nýverið opnaði Listasafn Íslands sýninguna Halló Geimur – valin verk úr safneign.Verkefni nemendanna var að skoða sýninguna, velja sér listaverk og vinna skartgrip út frá því.

Nemendurnir eru á fyrsta og öðru ári, í fjögurra ára námi gull- og silfursmíðinnar. Þau hafa notið leiðsagnar kennara bæði í handverki og hönnun.Að sýna á Listasafni Íslands er nemendum mikil hvatning til frumleika og vandaðrar smíði.

Sýningin stendur yfir til 30. maí 2021.Hér er á ferðinni örsýning sem sýnir vel þá grósku sem á sér stað í námi gull- og silfursmíðinnar á Íslandi.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17