Krakkablúbburinn Krummi

Krakkaklúbburinn Krummi

Krakkaklúbburinn Krummi er fyrir börn á öllum aldri!

Nú á þremur stöðum!
Listasafni Íslands við Fríkirkjuveg, Safnahúsinu við Hverfisgötu og Listasafni Einars Jónssonar

Krakkaklúbburinn Krummi stendur fyrir fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá í hverjum mánuði þar sem kátum krökkum er boðið að fræðast um listaverkin í safneign Listasafns Íslands, skapa listaverk og leika sér í nærandi umhverfi.

Með stofnun krakkaklúbbsins vill Listasafn Íslands veita börnum og fjölskyldum þeirra tækifæri til þess að njóta góðra stunda saman á safninu. Dagskráin er vönduð og öllum er velkomið að taka þátt, sér að kostnaðarlausu.

Listasafn Íslands tekur vel á móti öllum börnum og fylgdarmönnum þeirra!

Merki krakkaklúbbsins er fengið út barnabókinni Rauði hatturinn og krummi eftir Ásgerði Búadóttur myndlistarmann.

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Listasafnið við Tjörnina, Safnahúsið og Listasafn Einars Jónssonar eru opin alla daga 10–17