KRAKKAKLÚBBURINN KRUMMI - ÞITT EIGIÐ LANDAKORT

4.2.2019

ÞITT EIGIÐ LANDAKORT! 

 

Landakortasmiðja í Listasafni ÍslandsLaugardaginn 23. febrúarKl. 14–16Vissir þú að það eru 5.106 kílómetrar frá Reykjavík til Beirút? Búum til okkar eigin landakort úr spennandi efniviði og látum hugmyndaflugið ráða.

Umsjón: Kristín Þóra Guðbjartsdóttir

 

Krakkaklúbburinn Krummi stendur fyrir fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá í hverjum mánuði þar sem kátum krökkum er boðið að fræðast um listaverkin í safneign Listasafns Íslands, skapa listaverk og leika sér í fallegu umhverfi.

Með stofnun þessa nýja krakkaklúbbs viljum við veita börnum og fjölskyldum þeirra tækifæri til þess að njóta góðra stunda saman á Listasafninu. Dagskráin er vönduð og öllum er velkomið að taka þátt, sér að kostnaðarlausu.Krakkaklúbburinn Krummi er fyrir börn á öllum aldri.

Með Krakkaklúbbnum Krumma vill Listasafn Íslands heiðra Ásgerði Búadóttur myndlistarmann með því að nota skemmtilegar og líflegar klippimyndir úr barnabókinni Rauði hatturinn og krummi eftir Ásgerði, sem innblástur og merki barnastarfsins. 

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 — 17, lokað á mánudögum yfir vetrartímann (1.10 — 30.4)