Listasafn Íslands og Heiða Björk Árnadóttir leita að upplýsingum um listaverk sem voru á sýningu í Listamannaskálanum í Reykjavík á Menningarviku hernámsandstæðinga, 3.-11. mars 1962.
Á sýningunni voru 48 málverk eftir 20 listamenn og 17 höggmyndir eftir 7 listamenn, samtals 65 verk. Vitað er um núverandi eigendur nokkurra verka en meirihlutinn er óþekktur í dag. Leitum við því til vina okkar/almennings um í von um að fá frekari upplýsingar. Sjá má nöfn listamanna og heiti verka í meðfylgjandi sýningarskrá. Til glöggvunar eru til ljósmyndir sem birtust í dagblöðum af fimm verkum sem voru á sýningunni.
Allar ábendingar varðandi umrædda sýningu eru vel þegnar.
Dagný Heiðdal tekur á móti upplýsingum á dagny.heiddal@listasafn.is.




Jón Benediktsson, Í fjötrum, gifs, án ártals.

Benedikt Gunnarsson, Sumardagur, án ártals. Mynd af verki með þessum titli fylgdi grein í Morgunblaðinu 8. Feb. 1974, þar sem fjallað er um útlán á myndlistarverkum frá bókasafni Norræna hússins og Borgarbókasafninu. Í greininni kemur fram að verkið hafi verið selt.

Gunnlaugur Scheving, Á þorksveiðum, án ártals.

Jóhann Briem, Sólbrunnin strönd, án ártals. Var sýnt í Bogasal Þjóðminjasafnsins 1963. Mynd með grein í Þjóðviljanum 20. Okt. 1963

Sverrir Haraldsson, Vetrarkvöld, án ártals. Mynd af verki með þessum titli frá 1961 í grein Morgunblaðsins 28. Ágúst 1977










