LISTAMANNASPJALL 18. JANÚAR KL. 14

14.1.2015

Halldór Björn Runólfsson, safnstjóri Listasafns Íslands, ræðir við Jón Óskar um sýninguna JÓN ÓSKAR - NÝ VERK. Sýningin opnaði 7.11.2014 og stendur til 8.2.2015 í Listasafni Íslands. Allir velkomnir!

Jón Óskar stundaði nám við School of Visual Arts í New York á níunda áratuginum. Hann á að baki fjölda einka- og samsýninga á Íslandi og erlendis. Verk hans eru að finna á einka- og opinberum söfnum víða um heim. Jón Óskar er málari stórra flata og stærð hefur ávallt verið órjúfanlegur hluti af tjáningarmáta hans. Magn er sömuleiðis einkennandi fyrir verklag hans enda kýs hann fremur að fást við myndraðir en einstök og afmörkuð verk. Þörfin fyrir að bregða upp órofa ferli verður til þess að eitt verk leiðir af öðru án þess að skörp skil verði frá mynd til myndar. Slík nálgun krefst þess að áhorfandinn fái innsýn í framvinduna sem stýrir flæðinu og upplifi hana sem tímatengda fremur en rýmiskennda. Því segja stök verk aðeins hálfa söguna rétt eins og hljóðbrot úr samfelldu symfónísku ljóði.

Um sýninguna sjá nánar hér.

in english

Fjársjóður íslenskrar myndlistar

Safnið er opið alla daga frá 10 - 17